Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1948, Side 33

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1948, Side 33
FYRIR HUNDRAÐ ÁRUM 23 samþykktir Undirbúningsþingsins að lögum, og ríkisstjórnir hinna þýzku landa framkvæmdu þær. Kosningar til Þjóðsamkomunnar fóru fram í apríl og var hún sett hinn 13. mai 1848 í Pálskirkju í Frankfurt am Main. Fulltrúarnir voru um 580 þegar mest var, úrvalslið þýzkra miðstétta, en einkum bar niikið á prófessorunr og rithöfundum. Frægustu menn þýzkrar sagnfræði og lögvísi voru þarna saman komnir, svo sem Dahlmann og Waits, Droysen og Gervinus. Jakob Grimm, málfræðingurinn, og skáldið Ludwig Uhland. En eftirtektarvert er það, að stéttir iðn- aðar og verzlunar höfðu þar færri fulltrúa en liklegt var. Fulltrúar Þjóðsamkomunnar bjuggu yfir miklum lærdómi og mannviti, þýzka þjóðin hafði ekki valið af verri endanum, er hún kaus sér fulltrúa í fyrsta sinn til að leggja grundvöll að stjórnarfari hins nýja þýzka i'íkis. En hins skal strax getið, að aumari byltingarmönnum en þessum sonum Mínervu er leitun á í allri veraldarsögunni. Sagan bafði skipað þeim í fylkingarbrjóst þýzku byltingarinnar, þar sem dirfska og aftur dirfska, svo að orð Dantons séu uotuð, voru brýn- asta nauðsyn dagsins. En í stað þess að taka forustu byltingarinnar í sínar hendur breyttu þeir þjóðsamkomunni í fræðilegan rökræðu- klúbb, meðan lífið sjálft rann eins og sandur úr greipum þeirra. Þjóðsamkoman í Pálskirkjunni í Frankfurt am Main er grátbros- legasti hrakfallabálkur, sem um getur í síðari tíma sögu. Þetta mann- val þýzku þjóðarinnar hafði stefnt hér til fundar til að gefa henni stjórnlög, en það var með öllu valdalaust. Tilveruréttur þingsins var eingöngu siðferðilegur réttur, sem hin gömlu máttarvöld fyrirlitu og hæddust að, og þessi réttur molnaði undan fótum þess með hverj- um degi er leið. Fyrsta verk Þjóðsamkomunnar var að stofna nýtt Sambandsráð. Þingnefndin lagði til að skipað yrði ráð þriggja þjóðstjóra, en það var fellt, sömuleiðis lillaga frá lýðveldissinnum, að þjóðsam- koman kysi framkvæmdaráð úr sínum eigin hópi. Loks var sam- þykkt að kjósa Jóhann erkilierloga aj Austurríki til ríkisstjóra, en hann var sá eini af fjórum austurrískum erkihertogum, sem ekki hafði farið alveg varhluta af frjálslyndisstefnu tímans. Erkiher- toginn myndaði ríkisstjórn með sjö stjórnardeildum, er fóru með dómsmál, innanríkismál, utanríkismál, hermál, fjármál og verzlun.

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.