Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1948, Side 51

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1948, Side 51
HVERS VEGNA ÉG BÝÐ MIG FRAM 41 Ég var ekki orðinn alveg vonlaus, þegár ég hóf baráttu fyrir kosningu framfarasinnaðra Demokrala, skömmu eftir að ég fór úr ríkisstjórninni haustið 1946. Þetta fólk hefur mikla þýðingu núna. IJað eru margir ágætir framfarasinnar innan vébanda Demokrata- flokksins, -— fáeinir þjóðþingsmenn og hundruð starfsmanna og embættismanna bæjar- og sveitarfélaga og einstakra ríkja. Ég held, að öruggasta ráðið til að fá þá endurkosna sé að styðja viðleitni þeirra með öflugum áróðri á grundvelli stórmálanna, en ekki póli- tískrar hentisemi. Slík áróðursherferð mun vekja áhuga í milljón- uin kjósenda, sem munu aftur á móti sitja heima, ef þeir eiga aðeins um tvennt illl að velja í höfuðátökunum um forsetakjörið. Tilgangsleysi þeirrar stefnu að greiða atkvæði sitt hinum skárra af tveimur illum, kom greinilega í ljós í kosningabaráttunni 1946. Stjórnmálanefnd CIO’s [hins róttæka verkalýðssambands Banda- ríkjanna. Þýð.] laldi þá nauðsynlegt að fylgja þeirri stefnu. Þeir lögðu fram fé og vinnu til stuðnings hinum „skárri". Yerulegur hluti þessara „skárri“ frambjóðenda, sem hlutu kosningu, greiddu síðar atkvæði með Taft-Hartley-lagafrumvarpinu [þrælalögunuin gegn verkalýðssamtökunum. Þýð.]. Þeir sem tala um, að sumir frambjóðendur séu skárri en hinir, virðast yfirleilt sammála um, að Demokratarnir séu hinir skárri. Þeir játa, að við eigum um tvennt misillt að velja. Ég hef sjálfur ekki getað sannfærzt um, að hægt sé að stuðla að farsæld banda- rísku þjóðarinnar með því að greiða atkvæði með nokkru illu, — á hvaða stigi sem er. Kommúnistarnir Margir þeirra vina minna, sem hafa stutt ákvörð- un mína, héldu því áður fram, að hún væri hættuleg af því að kommúnistarnir væru með henni. En ég hef aldrei haft trú á því að hverfa frá rökstuddri afstöðu af því að svo vildi til, að hún hlyti stuðning annarra, sem maður er mjög ósammála. Mér hefur oft áður fyrr verið sagt, að ég ætti ekki að heyja baráttu móti atkvæða- greiðsluskattinum af því að kommúnistarnir vildu afnám hans. Ég hélt baráttunni áfram. Röksemdin er ónýt. A síðastliðnu ári hef ég haldið fram utanríkismálastefnu, sem

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.