Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1948, Page 53

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1948, Page 53
HVERS VEGNA ÉG BÝtí MIG ERAM 43 heyja baráttu fyrir hagsmunum fólksins og með almennri þátttöku þess árið 1948. Ef peningar til stjórnmálabaráttu koma frá stórlöxunum einum, þá eru Bandaríkin orðin að því, sem Rússar segja að þau séu. Eg neita þessari skoðun. Eg held, að fólkið geti enn látið lýðræðis- skipulagið þrifast. Ég hef ekki áhyggjur af peningunum, því að ég veit, að við munum fá milljónir dollara að gjöf frá húsmæðrum, skrifstofustúlkum, menntamönnum, verkamönnum og trúnaðar- mönnum á vinnustöðvum, og öðrum, sem munu vinna okkur með áhuga, sem ekki verður keyptur fyrir mikið fé. Vér munum þarfnast peninga og ég hugsa, að við fáum þá. Vér munum ekki þarfnast stuðnings frá Wall Street og hernaðarsinna- klíkunni, því að vér munum hafa höfuðmálin að hyrningarsteinum haráttunnar. en ekki pólitíska hentisemi. Vér búumst við skömm- um og vér munum standast þær um leið og vér minnumst skanim- anna, sem ausið var yfir Jefferson. Jackson, Lincoln og fylgismenn þeirra. Vér munum ekki láta óamerísku nefndina eða aðra róg- burðarlistamenn trufla oss. Vér munum borfa vongóðir fram á leið og treysta j>ví, að i nóvember muni bandaríska þjóðin láta til sín taka í kosningunum. Þá mun allur heimurinn fá að vita, hversu mikinn áhuga Bandaríkjamenn hafa á friði og öryggi. Bjarni Einarsson íslenzkaði.

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.