Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1948, Page 57

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1948, Page 57
J 0 H N H E R S E Y : HIROSHIMA ( Niðurlag) Tíunda ágúst írétti faðir Kleinsorge hjá einhverjum að dr. Fujii hefði skaddazt og hefði að lokum komizt út í sumarbústað vinar síns, Okuma að nafni, í þorpinu Fukawa, og hann spurði föður Cieslik hvort hann vildi fara og athuga hvernig dr. Fujii liði. Faðir Cieslik fór til Misasa-brautarstöðvarinnar fyrir utan Hiroshima, ók í tuttugu mínútur með rafmagnslest og gekk síðan hálfan annan klukkutíma í brennheitu sólskininu heim að húsi herra Okuma, en það var við fjallsrætur hjá Ota-ánni. Hann kom að dr. Fujii þar sem hann sat í morgunslopp í stól og var að leggja bakstra við hrotna viðbeinið. Læknirinn sagði föður Cieslik að hann hefði týnt gleraugunum sínum og að hann hefði óþægindi í augunum. Hann sýndi prestinum miklar hláar og grænar rákir þar sem hjálk- arnir höfðu marið hann. Hann bauð jesúítanum fyrst sígarettu og síðan viský, þótt klukkan væri aðeins orðin ellefu að morgni. Faðir Cieslik hélt að það myndi gleðja dr. Fujii ef hann þekktist hoðið, svo að hann játaði því. Þjónn færði þeim Suntory viský, og jesú- ítinn, læknirinn og húsráðandinn átlu skennntilegasta samtal. Herra Okuma hafði átt heima á Havaii, og hann sagði frá ýmsu um Bandaríkjamenn. Dr. Fujii minntist örlítið á sprenginguna. Hann sagði að herra Okuma og hjúkrunarkona hefðu leitað í spítalarúst- unum og komið aftur með lítinn peningaskáp sem hann hafði verið búinn að flytja út í loftvarnarbyrgið. í honum voru ýmis lækn- ingatæki, og dr. Fujii lét föður Cieslik fá nokkur skæri og sára- tengur lianda forstöðumanninum. Faðir Cieslik var uppfullur af einhverjum leynifréttum sem hann hafði náð í, en hann beið þar til talið barst af sjálfu sér að hinni dularfullu sprengju. Þá sagðist hann vita hvers konar sprengja þetta væri; hann hefði fengið

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.