Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1948, Side 61

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1948, Side 61
HIROSHIMA 51 ganga mikið, alein aftur til Hiroshima, fyrst með rafmagnsvagni að einu úthverfi borgarinnar, en fótgangandi þaðan. Alla vikuna í klaustrinu hafði hún liaft áhyggjur af móður sinni, bróður og eldri systur sinni, en þau áttu heima í þeim hluta borgarinnar, sem nefndur var Fukuro, og auk þess fannst henni sem væri hún knúin af einhverju seiðmagni, á sama liátt og faðir Kleinsorge. Hún komst að raun um, að öll fjölskylda hennar var dáin. Hún fór aftur til Kabe svo forviða og döpur af því sem hún hafði séð og heyrt í borginni, að hún mátti ekki rnæla allt kvöldið. I RAUÐAKROSS-spítalanum var svolítil regla að komast á. Þegar dr. Sasaki kom aftur eftir hvíld sína, tók hann að flokka sjúklingana (sem enn voru dreifðir um allt, jafnvel í stigunum). Starfsfólkið sópaði smám saman út brotum og öðru rusli. Bezt var þó, að hjúkrunarkonur og aðstoðarmenn voru farin að flytja út líkin. Japönum er það miklu veigameiri siðferðileg skylda að ráðstafa líkömum hinna dauðu með sómasamlegri líkhrennslu og skrínlagn- ingu en viðeigandi umhyggja fyrir lifandi fólki. Aðstandendur báru kennsl á flesta þá, er létust fyrsta daginn í og umhverfis spít- alann. Á öðrum degi var upp tekin sú regla, að í hvert skipti, er sjúklingur virtist vera að deyja, var miða með árituðu nafni hans nælt utan á fötin. Sá flokkur, sem annaðist um líkin, bar þau út á autt svæði fyrir utan spítalann, lagði þau á kesti hlaðna úr viði frá eyði- lögðum húsum, hrenndi þau og lét dálítið af öskunni í umslög, sem ætluð voru til að varðveita í framkallaðar röntgenplötur. Á umslögin var ritað nafn hins látna, og þeim síðan raðað smekklega og virðulega í stafla inni á aðalskrifstofunni. Eftir nokkra daga þöktu umslögin heilan vegg í þessari hráðahirgðalíkgeymslu. I kabe, að morgni 15. ágúst, heyrði hinn tíu ára gamli Toshio Nakamura til flugvélar uppi í loftinu. Hann hljóp út fyrir og sá með glöggu auga, að það var B-29. „Þarna fer herra B!“ hrópaði hann. Einn af ættingjum hans kallaði út til hans: „Ertu ekki búinn að fá nóg af herra B?“ Spurningin var einkennilega táknræn. Næstum á því sama augna-

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.