Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1948, Page 73

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1948, Page 73
HIROSHIMA 63 mótstöðuviðbragð líkamans gagnvart veikindunum — eins og til dæmis þegar fjöldi hvítu blóðkornanna varð ekki aðeins eðlilegur, heldur fór langt upp fyrir það. Á þriðja stiginu létust margir sjúkl- ingar af aukakvillum, svo sem eitrun í brjóstholinu. Flest brunasár greru með djúpum, bleikrauðum örvef, sem nefndur er keloid. Veikin var misjafnlega langvinn, allt eftir líkamsástandi sjúklings- ins og hversu mikilli geislun hann hafði orðið fyrir. Sumir náðu sér á einni viku, hjá öðrum dróst það mánuðum saman. Eftir því sem einkennin lýstu sér, varð það greinilegt, að mörg- um þeirra svipaði til afleiðinga of mikilla röntgengeisla, og lækn- arnir höguðu meðferð sinni samkvæmt því. Þeir létu sjúklingana fá lifrarmeðul, blóðgjafir og vítamín, einkum Bj. Skortur lyfja og verkfæra hamlaði þeim. Læknum bandamanna, sem komu þarna eftir uppgjöfina, gafst mjög vel að dæla í sjúklingana blóðvatni og penicillíni. Þar eð blóðtruflanirnar voru aðalþáttur veikinnar þegar lil lengdar lét, datt nokkrum japönskum læknum í hug skýring á orsök þeirra einkenna, er seinna komu fram. Þeir álitu, að ef til vill gerðu gamma-geislar, sem kæmusl inn í líkamann við spreng- inguna, fosfórið í beinum sjúklingsins geislamagnað, og það gæfi aftur frá sér beta-agnir, og þó að þær færu ekki langt í gegnum kjöt, gætu þær komizt inn í merginn, þar sem blóðið er framleitt, og smátt og smátt eytt honum. Hver svo sem uppruni veikinnar kann að hafa verið, var það víst, að duttlungar hennar voru margir óskiljanlegii' og erfiðir viðureignar. Ekki komu öll aðaleinkennin fram hjá öllum sjúklingunum. Þeir sjúklingar, sem voru með sár eftir leifturbruna, voru að mjög miklu leyti ónæmir fyrir geislunar- veiki. Þeim, sem höfðu legið kyrrir nokkra daga, eða jafnvel aðeins nokkra klukkutíma, var miklu síður hætt við að veikjast, en þeim, sem höfðu hreyft sig mikið. Gráhært fólk fékk mjög sjaldan hárlos. Og það var eins og náttúran væri að vernda manninn fyrir eigin hugviti hans, nreð því að getnaðarmöguleikar hans voru rýrðir um hríð, karlmenn urðu ófrjóir, kvenfólki Ieystist höfn, tíðir hættu. TÍU DAGA eftir flóðið mikla hjó dr. Fujii í bóndabænum á fjallinu upp af Ota. Þá frétti hann um falan einkaspítala i Kaitaichi, út-

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.