Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1948, Qupperneq 89

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1948, Qupperneq 89
UMSAGNIR UM BÆKUR 79 köllunina, feimnu lögreglunni sem endaði í steininum. Hann á sér uppreisnar von, af því að honum tókst ekki að fylgja leikreglum skipulagsins, en lenti skökkum megin við þær. Sagt hefur verið um þessa bók að hún hafi ekki áróðursgildi, sé jafnvel andpólitísk (hvað svo sem átt er við með því). Satt er það að pappír er þolinmóður og orðin teygjanleg. Listaverk sem lýsir þjóðfélagsástandi frá ákveðnu sjónarmiði hefur alltaf áróðursgildi, og enginn þarf að fara í graf- götur um sjónarmið Halldórs. Og því meira listaverk sem bókin er, því sterk- ari verða áhrif hennar, og þegar tii lengdar lætur er heildin meira virði en þeir kaflar bókarinnar þar sem kalla má að vikið sé beint að deilumálum dagsins. Halldór kemur þar víða við að vanda — kannski fullvíða — og situr sig ekki úr færi að höggva til beggja handa. Þar mun margur þykjast eiga um sárt að binda, en þó einkum þeir sem skilja hver er megintilgangur hókar- innar og sjá að hún er bein árás á sjálfan lífsgrundvöll þeirra. Engan skyldi því undra þótt ýmsum sé annt um að reyna að hefnast á skáldinu og grípi lil aðgerða sem ef til vill eru skiljanlegar, en ekki verða taldar að sama skapi viturlegar. í þessu felst ástæðan til þeirra viðbragða sent lýst var hér í upp- liafi og svarið við þeirri spurningu sent þar var kastað fram. Slík geðvonzkuviðbrögð eru öruggt tákn þess að höfundurinn hefur hitt í mark. Flest blöð höfuðstaðarins hafa að þessu tekið þann kost að þegja um bókina. og hverfa nteð því aftur að þeirri baráttuaðferð gegn höfundinum sem þrautreynd er að árangursleysi fyrir löngu. Hvað sem hver segir eða segir ekki hefiir þessi bók þegar verið keypl og lesin meir en flestar aðrar bækur íslenzkar, enda á hún það fyllilega skilið. Menn ntega hara ekki gera það að aðalatriði að leita uppi fyrirmyndir að persónum bókarinnar og við- hurðuni, en í það var eytt miklu hugviti fyrstu dagana eftir að bókin kom út. Auðvitað er auðvelt að benda á einstök atriði sem Halldór hefur tekið beint úr viðburðum ársins 1945—46 og fyrirmyndir að vissum dráttum í persónum hókarinnar. En slík hafa vinnubriigð Halldórs alltaf verið, persónur þessarar bókar lifa sínu eigin lífi engu síður en í öðrum bókum bans. Islenzk tunga er orðin svo auðsveipt verkfæri í höndum Halldórs að manni finnst hann geta gerl allt sem honum dettur í hug. Sparsemi hans og linit- miðun í orðavali er með þeim afbrigðum að vegna þess eins er full ástæða og nauðsyn til að lesa þessa bók oft, því að margt fer fram hjá manni við fyrsta lestur. Bókin er öll sindrandi af fyndni, ljóslifandi samtölum og til- svörum, meitluðum setninguni með dýpt og hrynjandi orðskviða. Og innan um glitra perlur ljóðrænna lýsinga sem standa jafnfætis því bezta sem Halldór hefur skrifað hingað til. Vinnubrögðum höfundar verður ekki betur lýst en með orðum organistans: „Það er einkenni inikillar listar að þeim sem ekkert kann finst hann gæti húið þetta til sjálfur -- ef hann væri nógu heimskur.“ J. B.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.