Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1952, Blaðsíða 38

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1952, Blaðsíða 38
28 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR líka, að það sé einíaldlega greiðsla á samvizkuskuld til foreldranna, af því að hann gat ekki gengið í spor þeirra. Ritverk Lagerkvists á árunum frá 1925—30 eru, eins og Onda sagor, ýmist í Ijósum eða dökkum litum. Þau bera þó ekki vitni um neina meiriháttar innri árekstra. Að baki þeim liggur einmitt nokkur styrkur. Skáldið virðist vera komið svo langt að geta horft yfir örlög sín. Sem dæmi þess sjáum við einnig, að hann er nú þess megnugur að gera hluta af ævi sinni skil í listrænni frásögn. Það er bókin Gdst hos verk- ligheten (Gestur raunveruleikans), þar sem hann segir frá uppvaxtar- árum sínuin. Raunar er það ekki neitt alskírt listaverk. Höfundurinn stendur ekki frjáls gagnvart því, sem hann lýsir. Það leynir sér ekki, hvernig hann í senn streitist gegn bernskuumhverfinu og dregst að því. Bókin er líf, titrandi og nakið líf. Enda þótt Lagekvist hafi ekki getað losað sig við tilfinningasemina, er bókin engan veginn sneydd raunsæi. Sumar blaðsíðurnar eru skrifaðar af svo raunsærri nákvæmni, til dæm- is frásögnin af jarðarför í sveitinni, að menn sjá umhverfið Ijóslega fyrir sér. Þar kemur fram ný lilið á ritlist hans. Árið eftir að sjálfsævisagan kom út, birtist eitthvert fegursta ljóða- safn Lagerkvists, Hjartats sánger. Meðal annars eru þar mörg af bezt gerðu ástarkvæðum lians. 1 augum Lagerkvists er ástin eitt af hinum miklu undrum tilverunnar. Hún veitir honum þá blíðu, sem viðkvæmni hans þarfnast. Hún veitir honum hlýju og nálægð, þegar kuldi alheims- ins og óendanleg fjarlægð ætla að yfirbuga hann. Tæplega er unnt að finna í ritum Lagerkvists hina nöktu, titrandi viðkvæmni í jafnríkum mæli og einmitt í ástarkvæðum hans. „Dina ögon ár sá bara, fryser du inte om dem?“ Þannig hefst eitt af elztu ljóðum hans. Ástin er allt- af svo nakineyg hjá Lagerkvist. Þessvegna er það kannske framar öllu í ljóðum um hana, sem hið nakta, skrautlausa form á hvað bezt heima. Hin beru augu þola enga skáldlega viðhöfn. Ást Lagerkvists er ekki með eðli hinna jarðföstu. Hún er brothætt og fallvölt, mótuð af hverf- ulleik tilverunnar. Mörg ljóð hans fjalla um ást, sem er að sölna eða er þegar orðin minning ein. En tónn þeirra er frábærlega hreinn. Eng- in tilgerð gruggar myndina, — en langt niðri í djúpinu skín ljúfsár minningin. Ástarkvæði Lagerkvists eru, í einfeldni sinni, eitt hið dýr- mætasta, sem hann hefur gefið okkur. Hin hóglega viðkvæmni þeirra og einlægni gæðir þau skini, sem altekur mann.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.