Tímarit Máls og menningar - 01.03.1952, Blaðsíða 74
64
TÍMARIT MÁLS OC MENNINGAR
eítir þeim kröfum, sem bezt þykir henta á hverjum tíma. Raunar hygg
ég að það sé gert nú þegar, eftir því sem aðstæður leyfa. En æfinga-
kennsluna hefur skort húsnæði og tilraunabekk vantar alveg. Kennara-
skóli þarf að vera á hnotskóm eftir beztu tækjum og leiðum, sem aðrir
notfæra sér, bæði innan lands og utan, og samhæfa það við íslenzkar
aðstæður eða láta það róa.
IV
Sumir segja kannski: nú er nóg komið með allt þetta skólafargan. og
telja skólalöggjöfina nýju vera að sliga þjóðina fjárhagslega með 28—
30 millj. kr. útgjöldum árlega lil skólamála. Það þótti dýrt fyrir 950
árum að ala upp öll börn, sum voru borin út, allt fram á annan áratug
11. aldar. Svo var útburður barna numinn úr lögum, þó að dýrt væri
að ala þau upp. Allur fjöldinn sér ekki eftir þeim peningum, sem fara
til skólamála, ef þeir kæmu að tilælluðum notum. En um það eru menn
ekki á eitt sáttir og af sumum dæmt af mikilli skammsýni og þekkingar-
leysi á starfsemi skólanna og allri aðstöðu í uppeldismálum.
Hér er við ramman reip að draga. Til þess að verulegur árangur
fáist af starfi skólanna, þá þurfa tilsvarandi breytingar að fara fram í
þjóðfélaginu. Margskonar hættur liggja þar í vegi fyrir börnum og
unglingum, svo að mörg glæsileg mannsefni týnast. Það má nefna
áfengið, tóHakið, sælgætið og annan óþarfa, ætan og óætan, sem ligg-
ur í leyni fyrir upprennandi æsku. 1 umræðum um skóla og uppeldi
gleyma menn oft umhverfinu og skella oft að óverðskulduðu sökinni
á heimilin eða skólana, helzt þeir, sem þekkja þá minnst.
Eitt tímarit hér í Reykjavik gat þess í vetur, að nokkrir sænskir skól-
ar hefðu sameinazt um að útrýma sælgætisáti úr skólunum. Tímaritið
taldi þetta eftirbreytnisvert og spurði hvaða skólar hér á landi vildu
ríða á vaðið. Síðan Melaskólinn tók til starfa eru 5 ár. 011 þessi ár
hefur sælgæti. tyggigúm og gosdrykkir, einkum coca-cola, verið gert
útlægt úr skólanum með ágætum árangri. í þetta var ráðizt af skóla-
stjóra í samráði við skólalækni og hjúkrunarkonu og með fulltingi
kennara. En livað gera heimilin? Hvað vill umhverfið?
V
Meginhlutverk skólanna er að gera nemendur sem starfhæfasta og
einkum á þeim sviðum, seni hæfileikar hvers og eins henta bezt. Sé