Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1952, Side 40

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1952, Side 40
30 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR hugmyndakerfum þessum finnur Lagerkvist svo ískalda mannfyrirlitn- ing, að hann rís öndverður. En viðbrögð hans stjórnast ekki af blindu hatri, heldur grípur hann til mannlegrar sjálfsprófunar. Honum hefur að vísu aldrei dottið í hug, að mennirnir væru frá yzta horði til innsta kjarna góðar verur. En áður hafði hann litið svo á, að það væri lífið, sem gerði manninn þannig. Mennirnir voru eiginlega saklausir sjálfir. Nú fellst liann á, að það búi eitthvað illt í mönnunum eða réttara sagt eitthvað, sem hægt sé að nota i þjónuslu hins illa. Lagerkvist fyrirlítur sálfræði, en hann hefur uppgötvað hið sama og sálfræðin. Það er minnstur hluti mannsins, sem veil út í dagsbirtuna. Á bak við eru hin máltugu öfl. sem stjórna okkur, og þau leiða okkur afvega, ef við kunn- um ekki að stýra þeim. Þessi skilningur verður eitl af leiðarljósum Lagerkvists í skáldskap rúman áralug. Víðfeðmi þess skáldskapar vex af andstæðunum milli brattsækins fullkomnunarvilja mannsins og hinna myrku afla innra með honum. Fyrsta verkið af þessu tæi kom einmitt út 1933, sama árið og nazism- inn komst lil valda í Þýzkalandi. Það er frásögn, er ber nafnið Bödeln (Böðullinn). Henni er skipt í tvo hluta, sem eru hvor öðrum gerólíkir, en hafa einn hlut sameiginlegan, böðulinn sjálfan, er situr þögull, hreyf- ingarlaus í rauða kuflinum sínum. Sviðið er fyrst lítil miðaldakrá. og í kringum böðulinn þvaðra einfaldar manneskjur í lotning og hjátrúar- hrifning um vald hans til ills, en einnig til góðs. Þá er breytt um svið á líkan hátt og tíðkast í kvikmyndum. 1 stað miðaldakrárinnar kemur nútímaveitingahús með glamrandi jassmúsík. Böðullinn situr hreyf- ingarlaus á sama stað, en kringum hann ólgar tryllt skemmtanalífið, sem verður einungis trylltara við það, að skammbyssuskotum hafði verið ldeypt af á negrahljómsveitina. Nærvera böðulsins lítur úl fyrir að verka frekast eins og skemmtiatriði til að auka enn æsinginn. Þann- ig er í sterkum andstæðum dregin fram tvenns konar afstaða til nivrkra- valdsins, hjátrúarleg lotning eldri tíma og uppæst dýrkun þess nú á tímum. Það eru tvær myndir, önnur ímyndunarríkt málverk, gerl eftir gamalli þjóðtrú, hin miskunnarlaus skopteikning. Hástigi nær frásögn- in, þegar böðullinn stendur uj)p og tekur til máls. Það er eins og allt hörfi undan. Böðullinn einn gnæfir upp úr í yfirnáttúrlegri stærð. Ég er yður Kristur, segir hann, styrjaldarvaki á jörðu og illur vilji mönn- unum. En ein's og Kristur bíð ég einnig fórnardauðans, bíð þess að
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.