Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1952, Side 48

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1952, Side 48
38 TÍMARIT MÁLS OC MENNINGAR rætast fyrr eða síðar: að sjá með eigin augum þennan draumadal og kynnast honum. Hún er ekki alveg viss um hvað af vitneskju hennar eru áreiðanlegar upplýsingar og hvað hennar eigin heilafóstur, en það skiptir hana engu. I vitund hennar eru það allt staðreyndir og fyrst og fremst sagan um stúlkuna og fallegasta manninn. Þá sögu lifir hún á hverju kvöldi meðan liana verkjar í hin ekki lengur ungu bein sín eftir dagsins stril unz svefninn firrir hana bæði kvölum og sælu og býr hana undir nýjan erfiðisdag og bætir honum af jafnri nákvæmni og rnisk-. unnarleysi við aldur hennar. Sjálf hefur hún alizt upp í þessu leiðinda sjávarþorpi. þar sem flest það er augað leit var annað hvort óttalegt eða ófagurt. Til að mynda hafið. Þessi mikli blái flötur, sem gæti þó helzt heillað hana og nærl draumþrá hennar, er svo efnishvikull að hún getur aldrei fest traust á honum. Aður en varir er hann búinn að taka á sig hinar ægilegustu myndir, og kvak hans breytist fyrirvaralaust í öskur sem gera hana hrædda. Og þó liann oft af gjafmildri rausn veiti strandbúum af auði sínum er hann vís til að halda honum fyrir þeirn unz þeir örvænta. Og hve margir hafa ekki orðið að horfa á ástvini sína hverfa í þetta svik- ula djúp þegar þeir mældu afl sitt við það í baráttunni fyrir daglegum þörfum sínum og sinna? Hér er ekki þess öryggis að vænta sem hin góða jörð í dalnum veitir. Og hver sem lílur þessa skökku timburkofa með möl eða skarni í kring finnur hve raunalegt auðnuleysi þeim er áskapað er hér verða að eyða lífdögum — hvergi gras, engin á, aðeins litlar lækjarsitrur stíflað- ar af drasli. Og nöfn bústaða fólksins: Jónshús Gróuhús Gvendarhús Sjóhús Innstahús — hús hús, enginn vottur hins fagra forna tungulaks, engin saga, engin örlög í nafni, aðeins hús hús — eins og verið sé að tala um grjón. Hvern furðar þá á því þó fólk liér sé heimóttarlegt lágt og duglaust, og hvernig ættu æfintýri sterkra arma við hól og skóg og ísi lagt fljót að geta gerzt í slíku plássi? Raunar er Pálína ekki rnjög kunnug fólki hér þó hún hafi alltaf verið innanum það og margt af því sé venzlafólk hennar. Tímafrekt strit hef- ur hindrað kynnin, og þó hafa ef til vill ekki síður þrá hennar eftir fjarlægri fegurð og draumar hennar um dalinn góða gert henni erfill að umgangast þetta hversdagsfólk í fullri samstillingu. Þess vegna höfðu íbúar þessa þorps i vitund hennar aðeins eina hlið, þá sem sneri
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.