Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1952, Síða 94

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1952, Síða 94
84 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR helming. Rétt á undan blómguninni nær magn hins lífræna efnis jurtanna og þar með fóðurgildi þeirra hámarki. Allt hið græna efni jurtarinnar kemur að gagni sem fóður, en fræið verður gagns- laust. Ymist fer það aftur ofan í jörðina við verkun heysins eða í úrganginn (moðið) þegar gefið er. Við blómgunina minnkar þurrefnismagn jurtarinnar um 10—20% og stilkurinn verður trénaður og heyið líkist meir hálmi en heyi. Meðan á blómguninni stendur soga jurtimar til sín mikið vatn og eyða þannig vatni úr jarðveginum til einskis gagns, frá hagnýtu búskaparsjónarmiði séð. Það er því hagkvæmast að slá grasið rétt áður en blómgun fer fram. Bezt er þó að slá tvisvar, en það er því aðeins hægt að fyrri sláttur sé sleginn snemma. Efnafræði jarðvegsins Uppruni jarðvegsins er í berglögunum. Sumstaðar eru hin jarðvegsmyndandi berglög að mestu leyti aluminíum-siliköt og jarðvegurinn verður því fátækur af kalki. Annarsstaðar er mikið af kalksteinslögum og kalsíum jónar myndast við veðrun og upplausn. Kalsíumkarbónat skolast burtu úr yfirborðsjarðlögunum og flyzt niður á við með regnvatni, stundum niður í grunnvatnið. Kalsíumkarbónat leysist aðeins í vatni sem inniheldur kolsýru og því meira því kaldara sem vatnið er. Þegar rignir og jörð er þýð kólnar vatnið á leið niður í jarðveginn og leysir þá upp meiri kolsýru og síðan meira kalk. Þegar vatn streymir upp á við gegnum jarðlögin á sumrin, hitnar það á leiðinni og gefur frá sér kolsýru og fellir út kalk. Þegar kalk hverfur úr jarðveginum verður hann súr; húmussýra og ýmsar aðrar lífrænar sýrur myndast úr lífrænum efnum, einnig saltpéturssýra, brennisteinssýra og fosfórsýra. Ef sýran í jarðveginum verður mikil hefur það skaðleg áhrif á gróðurinn. Míkró- Hfverur hætta að geta starfað og lífræn efni safnast fyrir. Jurtimar fer því að skorta köfnunarefni, fosfór og kalí enda þótt nóg sé af þeim efnum í jarðveginum. Jafnvel tilbúinn áburður gerir lítið gagn í slíkum jarðvegi því hann breytist fljótt í sambönd sem jurtirnar geta ekki notað. Þegar jarðvegur er of súr þarf að bera á kalk. Talið er að þess þurfi að jafnaði á 6—9 ára fresti. Ekki eru til neinar algildar forskriftir um hve mikið kalk eigi að bera á, enda er það mismunandi eftir ástæðum. Sýrustigið, Ph, í vel ræktuðum jarð- vegi á að vera aðeins undir 7. Jarðvegurinn getur einnig verið of alkalískur eða basískur og þá þarf að bæta í hann gipsi. Einkenni á alkalískum jarðvegi er mjög sterk samloðun. Slíkan jarðveg er ekki hægt að plægja með venjulegum verkfærum, a. m. k. ekki þurran. Þeg- ar hann er blautur er hann slímkenndur og plastískur og myndar járnharða strengi þegar hann þornar eftir plægingu. Eina ráðið til að koma slíkum jarðvegi í rækt er að nota gips og sá fjölærum grösum og belgjurtum. Gipsið þ. e. kalsíumsúlfat gerir svörun jarðvegsins veikt súra. Eins og áður hefur verið bent á er f jarlægt mikið af efnum með hverri uppskeru.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.