Tímarit Máls og menningar - 01.03.1952, Page 107
ANNÁLL ERLENDRA TÍÐINDA
97
ingarnar árangri. En vonda vöru gerum við aldrei útgehgilega, hversu góð sem aug-
lýsingastarfsemin er.“ Og New York Times skrifar í byrjun þessa árs erfimælin um
hinn pólitíska áróður Bandaríkjastjórnar, er blaðið lýsir innanlandshögum Frakk-
lands á þessa leið: „Það eru andkommúnistarnir, sem hafa haft flest áróðursvopnin
og hafa beitt þeim með eins mikilli leikni og kostur var á. En mennirnir geta hvorki
borðað áróður né klæðst honum, og ekki heldur leitað húsaskjóls í honum, hversu'
vel sem hann kann að vera úr garði gerður í Washington. Hvernig væri annars hægt
að skýra það, að andstaða vinstri manna harðnar, þrátt fyrir yfirgnæfandi vald
andkommúnista í blöðum, kvikmyndum og útvarpi? Það nær engri átt að blekkja
almenning Ameríku með villandi skýrslum um sigra á kommúnistum, þegar þeim
fylgja reglulega játningar um ósigra vora í baráttunni við kommúnista.“
Hin pólitísku vonbrigði, er Bandaríkin hafa orðið fyrir á síðasta ári hafa sýni-
lega vakið marga áhrifaríka og volduga Bandaríkjamenn til umhugsunar um það,
hvort það svari kostnaði að heyja öllu lengur hið kalda stríð við „kommúnismann“,
að minnsta kosti í því formi, sem það hefur verið háð. Ef slík hugarfarsbreyting
yrði almenn með valdamönnum Bandaríkjanna, væri mikið unnið. Því fyrr sem
Bandaríkin skilja, að þau verða að sætta sig við að búa i tvíbýli á hnettinum með
„kommúnismanum", að friðsamleg samskipti auðvalds og sósíalisma eru æskileg
og möguleg, því bjartara verður yfir framtíð alls mannkynsins á komandi árum:
Hin mikla friðarhreyfing, sem getið var í upphafi þessa máls, grundvallast á þeirri
sannfæringu, að kostur sé á að skipa svo málum þessara tveggja heimsafla, auðvalds
og kommúnisma, að þau rífi ekki hvort annað á hol í átökum, er gætu stefnt sjálfri
tilveru mannkynsins í tvísýnu.
II
Indland og indversku kosningarnar
Um fjögurra mánaða skeið hafa farið fram kosningar í næst fjölmennasta ríki-
veraldarinnar, Indlandi. Um 180 milljónir manna eru þar á kjörskrá, og þetta eru
fyrstu almennu kosningamar í sögu landsins. Furðu hljótt hefur verið um þessar
kosningar, og það var ekki fyrr en nokkuð var liðið á þær og úrslitin tóku að
verða kunn, að menn í Evrópu og Ameríku fóru að leggja við hlustimar. Hinir
furðulegu sigrar kommúnistaflokksins indverska og samfylkingar þeirra, er hann
hefur forystu fyrir, hafa enn á ný staðfest þá staðreynd, að hin alþýðlega hreyfing
kommúnismans í Asíu er í nýrri sókn.
Um langan aldur hefur Indland þótt slíkt hnoss, að það hefur verið draumur
mestu sigurvegara sögunnar að eignast það að herfangi, Alexanders mikla og
Napóleons mikla. Óbreyttir brezkir kauphöndlarar urðu þó hlutskarpastir í keppn-
inni um Indland, og á 19. öld var það kallað fegursti gimsteinninn í kórónu
Bretakonungs. Bretar stjórnuðu þessu mikla landi í hartnær 300 ár og slepptu
ekki tökum á því fyrr en í fulla hnefana. Sagan kann tæplega að herma frá æm-
lausari viðskilnaði drottnandi ríkis við nýlendu sína. Bretar unnu það afrek að
Tímarit Máls og menningar, 1. h. 1952 7