Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1952, Qupperneq 112

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1952, Qupperneq 112
102 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR manna Verkamannaflokksins blöskraði, er þeir heyrðu þessar uppljóstranir um leynimakk Verkamannastjómarinnar við Bandaríkin meðan hún sat við völd. Miðvikudagskvöldið hinn 5. marz má segja, að Verkamannaflokkurinn hafi klofn- að, er 57 þingmenn greiddu ekki atkvæði með tillögu flokksstjórnarinnar, er lýsti yfir stuðningi við vígbúnaðaráætlun stjórnarinnar, en vantrausti á, að Churchill gæti framkvæmt hana! Uppreisn Bevans og fylgismanna hans gegn hinni ráðandi flokksstjórn mun geta haft hinar mikilvægustu afleiðingar fyrir stefnu Bretlands. Bevan sagði í umræðum í neðri málstofu brezka þingsins, að loforð Churchills um stuðning við stefnu Bandaríkjanna í Kína gæti orðið til þess, að endir yrði hundinn á hina sameigin- legu utanríkisstefnu Verkamannaflokksins og íhaldsflokksins. Eftir að Bevan og fylgismenn hans rufu flokksagann hefur kveðið mjög við annan tón frá bekkjum verkamannaflokksþingmannanna á Bretlandi. Verkalýðs- hreyfing Bretlands fékk aftur sitt gamla málfar, er Bevan sagði neðri málstofunni, að brezka og bandaríska stjórnin blekktu sjálfar sig ef þær héldu, að sjálfstæðis- hreyfingar Asíuþjóða og Austurlanda væm til komnar fyrir samsæri Kremlbúa. Það er langt síðan að brezkur stjómmálamaður hefur dirfzt að láta út úr sér slík orð. En betra er seint en aldrei. Hvemig sem klofningurinn innan Verka- mannaflokksins verður leystur, þá er víst um það, að brezk verkalýðshreyfing verður ekki í framtíðinni eins mjúk í taumi og hún hefur verið. Hún hefur loks spyrnt við fótum og neitar að halda áfram á þeirri breiðu glötunarbraut, er leið- togar hennar hafa teygt hana út á. Lissabonfundurinn varð beinn undanfari þess, að flokksdeila brezka Verka- mannaflokksins brauzt út í ljósan loga. Nærri því samtímis varð enn ein stjómar- kreppa á Frakklandi. Ævi hins fjórða franska lýðveldis virðist ætla að verða skjögrandi ganga frá einni stjórnarkreppunni í aðra. Raunar er ekki annars að vænta í landi, sem meinar stærsta stjórnmálaflokki landsins, kommúnistaflokkn- um, alla þátttöku í ríkisstjórn, flokki, sem hefur yfirgnæfandi meirihluta verka- lýðsins að baki sér og innan vébanda sinna. Þegar háþróað iðnaðarland velur sér jafnan ríkisstjórnir, sem eru á öndverðum meið við hinn skipulagsbundna verka- lýð, en varðveitir í sama mund borgaraleg lýðræðisform, þá er þess ekki að vænta, að ríkisstjómir í slíku landi verði grónar við embættið. Fjárhag franska ríkisins má þessa stundina helzt líkja við fjármálaóreiðu Balk- anríkjanna milli heimsstyrjaldanna. Frakkland hervæðir sig blátt áfram á hús- ganginn. Ef fullnægja átti þeim kröfum, er Bandaríkin gerðu til vígbúnaðar Frakklands á Lissabonfundinum, þá námu útgjöld til hernaðarþarfa 1400 milljörð- um franka. Faure, forsætisráðherra Frakklands, fékk kríað út úr Bandaríkjunum 195 milljarða franka upp í þessa fúlgu, en þar í mót varð hann að skuldbinda sig til að gera áætlun um 15% almenna skattahækkun. Faure gerði það að fráfarar- atriði, ef skattahækkun þessi yrði ekki samþykkt, og varð í minni hluta í þinginu, enda brugðust honum jafnvel hans eigin flokksmenn. Þegar þetta er ritað er stjórnarkreppan að vísu leyst. Antoine Pinay hefur myndað stjóm með flestum gömlu ráðherrunum, en sú lausn er aðeins stormahlé. Kreppa Frakklands er ekki
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.