Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1959, Qupperneq 32

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1959, Qupperneq 32
TIMARIT MALS OG MENNINGAR Einar skapar sér nýjan ljóðstíl, þungan og voldugan eins og bergkastala eða útsæ og svo persónulegan að enginn hefur í alvöru dirfzt að feta í þá slóð. Svipuðu máli gegnir um Stephan G., enda þótt svipmót hans sé um sumt al- þýðlegra af skiljanlegum ástæðum — varla eins heilsteypt, en þeim mun ein- lægara og mennskara. Þessir tveir standa líkt og gnæfandi stórmerki þess gíf- urlega átaks sem þessi örsnauða og kúgaða smáþjóð hóf með frelsisbaráttu sinni og framsókn undir einkunnarorðunum: það þarf vakandi önd, það þarf vinnandi hönd, til að velta í rústir og byggja á ný. Að lokinni fyrri heimsstyrjöldinni er tekið að slá á nýja strengi, ýmist létt- ari og flugmeiri en áður eða sárari og tregafyllri. Stefán frá Hvítadal og Davíð Stefánsson slaka á formhefðinni, bæði í anda þjóðkvæða og að erlendri fyrirmynd. Og um svipað leyti, fyrir nær þrem áratugum, koma þegar fram órímuð og jafnvel óstuðluð ljóð með mismunandi ljóðlínulengd. Má þar til nefna kvæði eins og Söknuð eftir Jóhann Jónsson og Sorg eftir Jóhann Sigur- jónsson sem bæði eru einhverjar hinar fegurstu ljóðperlur sem við eigum. I kreppunni milli heimsstyrjaldanna myndast enn nýir ljóðstraumar, eink- um að efni til. í stað þjóðfrelsisbaráttunnar áður er þá tekin við innlend stéttabarátta sem brýnir sum skáldin til ádeilu og uppreisnar og endureflir þá kröfu um réttlátara þjóðfélag sem áður hafði kveðið við í Ijóðum Stephans G. og Þorsteins Erlingssonar. Á fyrsta ári síðari heimsstyrjaldarinnar var Island hernumið af einu stór- veldi og síðan hersett af öðru, en sú staðreynd hefur sett mjög svip á ljóða- gerð síðustu ára, þar sem mörgu skáldi þykir nú sem skert hafi verið ískyggi- lega nýfengið sjálfstæði hins unga lýðveldis og það svo að um beinan voða geti verið að ræða. 9 Þau verða oft örlög skálda, sem og annarra listamanna, ekki sízt ef þau ryðja að einhverju leyti nýjar brautir, að samtíðin reynist ófús til viðurkenn- ingar á list þeirra. Stundum er það formið sem veldur, stundum innihaldið, stundum hvorttveggja. Einn má ekki sjá óbundið Ijóð, annar þolir ekki þjóð- félagsádeilu o. s. frv. Jónas Hallgrímsson var engan veginn sá ástlingur sinna samtíðarmanna sem hann er núlifandi kynslóð. Einar Benediktsson þótti lengi vel svo myrkur í máli og torskilinn að almenningur hætti sér vart út í lestur ljóða hans. Þor- steinn Erlingsson var af mörgum svo hataður fyrir ádeilukvæði sín að hinar 126
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.