Tímarit Máls og menningar - 01.09.1959, Side 33
U M ÍSLENZKA LJÓÐLIST
ljúfu, hefðbundnu ferskeytlur hans dugðu ekki til að vega á móti. Og þannig
mætti lengi telja.
í ljóðlist síðustu ára eru það hin svonefndu atómljóð sem harðastri gagn-
rýni hafa sætt. En hvað eru þá þessi atómljóð? I útlistun sinni á því efni mun
margur staðnæmast við yfirborðið eitt, búninginn, og flokka allan þann skáld-
skap undir atómljóð sem brýtur að einhverju leyti í bága við íslenzkar brag-
reglur sem svo eru kallaðar — það er að segja stuðlasetningu, rím og hátt-
bundna lengd vísuorða. En nánari rannsókn á þeim atriðum mundi skjótt leiða
í ljós að í raun og veru geti það alls ekki verið þetta hefðbrot sem er fólki sár-
astur þyrnir í augum. Það kæmi sem sé upp úr kafinu að margt þessara atóm-
ljóða er bundið einhverri hrynjandi, jafnvel ljóðstöfum og rími, þótt ýmis til-
brigði og frávik sé stundum um að ræða. Þarf ekki annað en taka sjálfan
höfuðsnilling atómkveðskaparins, Stein Steinar, til athugunar — segjum
kvæðið „Tíminn og vatnið“ í samnefndri bók:
Tíniinn er eins og vatnið,
og vatnið er kalt og djúpt
eins og vitund mín sjálfs.
Og tíminn er eins og mynd,
sem er máluð af vatninu
og mér til hálfs.
Og tíminn og vatnið
renna veglaust til þurrðar
inn í vitund mín sjálfs.
Hér ætti sizt að skorta á fullnægingu brageyrans, því ljóð þetta er mun
bundnara en Sonatorrek Egils eða Söknuður Jónasar. Allar þrjár vísurnar
innihalda ekki einungis ljóðstafi, heldur eru þær samrímaðar í síðustu vísu-
orðunum, þótt rímorð hinnar fyrstu sé að vísu endurtekið í þeirri síðustu.
Hvað er þá að?
Sannleikuritm mun vera sá að það sé ekki í fyrsta lagi formið sem hneyksl-
uninni veldur, heldur hin óvæntu hugmyndatengsl, hin nýstárlega túlkun sem
beinlínis „ruglar fólk í ríminu“. Það „skilur“ ekki svona skáldskap fremur en
kvæði Einars Benediktssonar á sínum tíma — þótt með öðrum hætti sé. Eigi
að síður mun hver ljóðnæmur maður „finna“ að þetta kvæði Steins sé þrátt
fyrir allt ekki leirburður.
Ekki veit ég hvort Snorri Hjartarson mundi af almenningi verða talinn til
127