Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1959, Síða 41

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1959, Síða 41
ÍSLENZKAR FORNSÖGUR ERLENDIS samið er í öðrum tilgangi. Ég efast um, að það sé ofmælt, þótt ég segi, að íslenzka þjóðin hafi hlýtt á fornsögur vorar frá því, að þær voru samdar og fram á 19. öld. Af þessu sést, hve rótgrónar sög- urnar eru í íslenzkum jarðvegi. I þýð- ingum glatast mörg einkenni þeirra, og auk þess gengur útlendingum örð- uglega að skilja margt í þeim, eins og áður er vikið að. Utlendingar njóta sagnanna á annan hátt en vér. Þegar Ríkisútvarpið brá á það viturlega ráð að nota fornsögurnar til að skemmta áheyrendum, eins og upphaflegur til- gangur sagnanna raunar var, mun það hafa rifjazt upp fyrir mörgum hlustendum, að þannig ætti að njóta þeirra. Svo höfðu sögurnar verið not- aðar lengst af. Mér þykir ósennilegt, að mönnum muni brátt líða úr minni, hve snilldarlega Einari Ól. Sveinssyni fórst að lesa Njálu og skemmta svo alþjóð. En þegar ágætur upplesari reyndi að leika sama leik í brezka út- varpinu nokkrum misserum fyrr, varð raunin önnur. Njáls saga naut sín þar ekki af ýmsum ástæðum, en ein þeirra var sú, að enska þýðingin var gerð handa lesendum, en ekki handa áheyr- endum. Og svipuðu máli ætla ég, að gegni um margar aðrar þýðingar ís- lenzkra fornsagna. Engum manni myndi detta í hug að þýða leikrit Shakespeares án þess að hafa leiksvið í huga, því að með öðru móti næði þýðingin ekki tilgangi höfundar. En íslenzku sögurnar hljóta að gjalda þess, þegar þeim er snarað á aðrar tungur, að sögur til upplestrar eru ekki viðurkenndar sem sérstök bók- menntagrein með öðrum þjóðum á sama hátt og fornsögurnar voru um langan aldur hérlendis. Fornsögur vorar standa svipað að vígi á erlend- um vettvangi og leikrit Shakespeares í löndum, sem hafa ekkert leiksvið. Hvorratveggja verður notið á ýmsa lund, en þó ekki á þann hátt, sem höf- undar þeirra ætluðust til. 2 Kynni útlendra þjóða af íslenzkum fornsögum eru miklu eldri en hand- ritasöfnun Skandínava á 17. öld og elztu þýðingar sagnanna á aðrar tungur. Þegar íslendingar hófu sagnaritun, snemma á 12. öld, töluðu nágrannaþjóðir vorar tungur, sem voru harla svipaðar íslenzku. Þetta á vitanlega einkum við um Færeyinga, en mállýzkur í Noregi, Svíþjóð, Dan- mörku, Orkneyjum og Hjaltlandi voru þá mjög líkar íslenzku. Auk þess var íslenzka þá töluð á Grænlandi. í löndum þessum gátu menn skilið ís- lenzku fram á 13. öld og í sumum þeirra miklu lengur. Að vísu bendir ekkert til þess, að íslenzkar sögur hafi haft mikinn markað utanlands, en þó eru þess næg dæmi, að nágrannaþjóð- ir, sem voru svipaðrar tungu og vér, nytu góðs af íslenzkum sögum. Hvergi utan íslands virðist sagnaskemmtun 135
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.