Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1959, Page 91

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1959, Page 91
UMSAGNIR UM BÆKUlí briig'ð'ið' er upp fyrir honum gagntakandi skilningarvitin og hugann, ]iannig ferðast liann lengi með Rolland og verður undr- andi ]iegar fljótið sem stóð til að rekja að ósi birtist honum skyndilega af nýju. Um hugsjónastarf Rolland á árum heims- styrjaldarinnar fyrri þegar hann reyndi að flytja friðarorð á milli ]jjóða yfir öskrandi hatursvíti vígvallanna má vísa til sjálfsævi- sögu Zweig sem lýsir Rolland betur en ég hef annarsstaðar séð gjört enda sneru þeir bökum saman landflótta báðir í svissnesku griðlandi en það var auðvitað þýðingar- laust að reyna að koma vitinu fyrir stríðs- menn, þó var þá hlustað eftir því sem þeir SÖgðll. Það er sannarlega fagnaðarefni að Mál og menning skuli hafa fengið nngan hæfan mann Sigfús Daðason til að taka upp þráð- inn þar sem Þórarinn Bjömsson hætti hinni snjöllu þýðingu sinni fyrir 9 árum, þegar hann hafði snúið fjórum bindum verksins. Það væri efni í aðra grein að lýsa sinni persónulegri þakkarskuld við þetta verk og höfund þess. Mál og menning vinnur hið mesta happaverk með því að láta snúa Jó- hanni Kristófer á íslenzku og þýðendur hafa sannarlega unnið mikilsvert starf sem hér skal þakkað. Thor Vilhjálmsson. Guðmundur BötSvarsson: Dyr í vegginn. Heimskringla, Reykjavík, 1958. Guðmundur böðvarsson liefur um aldar- fjórðungs skeið og rösklega það verið skáld og bóndi uppi í Borgarfirði. Mér er ekki kunnur búskapur hans, en það hef ég fyrir satt, að hann búi góðu búi. Hitt er mér löngu kunnugt, að hann er 1 jóðskáld hugljúft og gott. Þegar menn skipta þannig lifi sínu milli tveggja viðfangsefna, er alltaf nokkur hætta á klofningi í sálinni. Tog- streitunnar milli bóndans og skáldsins gæt- ir dálítið í ljóðum Guðmundar líkt og hjá Stefáni G. Stefánssyni, en segja má að hon- um takist furðu vel að sætta skáldið og bóndann við kjör sín, án þess að upp komi afbrýðisemi eða hlutur annars hvors sé fyr- ir borð borinn. Nú hefur Guðmundur sent frá sér skáld- sögu, þar sem þetta forna og nýja vandamál er tekið til meðferðar: togstreitan milli þess sem manninn langar til að vera og þess sem umhverfið, samferðafólkið knýr hann til að vera. Dyr í vegginn er saga slíks manns, rit- uð í formi sendibréfs til vinar. Eg kann vel við form sögunnar. Þetta er eins og að lesa kærkomið sendibréf frá vini, en slík sendi- bréf eru orðin alltof fátíð á þessnm hrað- fleygu tímum síma og útvarps. Mér þótti einna verst, hve ég var fljótur að lesa bréf- ið. Sagan hefur á sér það einkenni Ijóðsins, að allri óþarfa mælgi er sleppt. Hún smýg- ur í gegnum hug lesandans eins og ljóð, og yfir lienni hvílir sami Ijúfi og einlægi þokk- inn og yfir ljóðum höfundar. Máski kann sumum lesendum að finnast sú hugmynd höfundar nokkuð fjarstæð, að bréfritarinn skyldi sendur á geðveikrahæli, af því að hann vildi heldur dunda við að mála myndir sér til gamans en grafa skurð sér til gagns, en það má mikið vera, ef sumir eru ekki innst inni þeirrar skoð- unar, að listamenn, sem af hrekkvísi og ónáttúru búa til hluti, sem eru andstæðir smekk alls almennings, eigi hvergi fremnr lieima en á geðveikrahæli eða betrunar- heimili fyrir vandræðafólk, ef ekki er hægt að grafa þá lifandi við brauðstrit. A þetta ekki hvað sízt við um Ijóðskáld og listmál- ara. Saga þessi er viðvörun gegn slíku of- stæki. Persónur sögunnar finnst mér allar eðli- legar og mannlegar. Eg trúi ekki öðru en bréfritarinn verði hvers manns hugljúfi, og læknisfrúna finnst mér ég kannast við, hina 185

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.