Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1966, Page 48

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1966, Page 48
Tímarit Máls og menningar greina getur ekki átt uppruna sinn í öðrum skrifuðum textum en Prestssög- unni. Þessar niðurstöður frú Ólafíu umturna hugmyndum sem menn höfðu áður gert sér um að Prestssagan væri reist á annálum; þær leiða meira að segja í ljós að Prestssaga Guðmundar góða er lángelstur annáll sem ritaður hefur verið á íslandi. (Höfundur Lambkár Þorgilsson, dauður 1249). Hver sá maður sem að nokkru hefur reynt að kynna sér hugblæ miðalda einsog hann var á þeim tímum þegar Ari skrifar hlýtur að velta fyrir sér hversu það má vera að þessi íslenski miðaldahöfundur kappkostar að þræða svo nærri staðreyndum í frásögn og ályktunum. I þann tíma eru kynjasögur af ýmsu tagi og guðvís mærð sá þjófahylur þar sem sagnfræðilegri skyn- semisglóru er drekt í poka. Það er merkilega sagt í Snorra-eddu, að Ari hafi orðið fyrstur manna til að setja hér fróðleik á bækur „af skynsamlegu viti“; þau orð segja ofur einfaldlega að maðurinn hafi verið rasjónalisti. Bent hef- ur verið á að Ari hafi orðið fyrir áhrifum af ritum eða útdráttum úr ritum Bedu, sem skrifaði rúmum 300 árum áður, en Beda hefur annan hugsunar- hátt og tilheyrir eldra mentastigi nær klassíkinni en síðar varð á miðöldum. Ari hirðir í aungvu um fyrirskipað kaþólskt snakk. Hann talar hreinlega um „burð Krists“ en ekki burð guðs eða híngaðburð vors drottins einsog siður var. Og þegar Ari verður til að nefna Ólaf Haraldsson hið fyrsta skifti í íslenskum bókmentum, kallar klerkur þessi dýrlínginn ekki Ólaf helga að skyldu kristins manns, heldur „Ólaf enn digra“, og nefnir hann aðeins einu sinni konúng í bók sinni af því ekki var hægt að komast hjá því í samband- inu; ekki er fráleitt að gera sér í hugarlund að Ara hafi verið kunnugt um að Ólafur er með öllu ókunnur í Róm á veldisdögum sínum í Noregi, og bréf eru fyrir því að páfi viðurkennir Knút ríka einan konúng yfir svæðum sem Ólafur þykist ráða. Að kalla Ólaf ekki konúng heldur „enn digra“ í fyrsta sinn sem hann er nefndur í Islendíngabók, og aldrei „hinn helga“ síðar í bókinni, ber vott um að Ari telji hann andvaragest. Svipuðu máli gegnir um Ingólf landnámsmann, en um þennan frumbyggja íslands veit Ari greinilega ekkert „sannlega sagt“, nema það að hann kom tvisvar í landið á öndverðum konúngsdögum Haralds hárfagra; og bygði „suður“ í Reykjavík. Eftilvill hefur jafnvel á dögum Ara eitthvað verið á huldu um uppruna þessa litlausa manns, og skrýtið að ekki hafa einusinni myndast um hann lygasögur. Hve valt hann stendur í sannfræðilegri geymd verður ljóst af þeirri uppgötvun sem Jón prófessor Jóhannesson gerir í riti sínu Gerðir Landnámabókar, að óhugsandi sé að Ingólfur þessi hafi verið Arnarson, — í hæsta lagi Björn- ólfsson! 38
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.