Tímarit Máls og menningar - 01.12.1967, Page 40
Tímarit Máls og menningar
beltið var skreytt tvöfaldri röð safíra og ametýststeina,
skórnir reimaðir með hvítum böndum,
prýddum rósrauðum perlum.
Þeir neíndu hann oftar en hina yngri,
þeir nefndu hann konung konunganna.
íbúar Alexandríu skildu það fullvel,
að þetta voru allt rétt stássleg orð.
En það var heitt í veðri, ljóð í lofti,
himinboginn asúrblár og bjartur,
Alexandríuvagninn
afreksverk listasmiða,
klæði hirðfólksins íburðarmikil og dýr,
Caesaríon svo þokkafullur og fríður
(og þeir allir, synir Kleópötru, af ætt Lagusar,)
svo að Alexandríubúar streymdu að til hátíðarinnar
og gáfu sig alla við því, sem fram fór, fögnuðu
á grísku, egypzku og sumir á hebresku,
heillaðir af hinni dýrlegu viðhafnarsjón —
en vitandi þó vel um virði þessa alls,
hve holhljóma orð þær voru, nafnbætur þessar.
Baldur Ragnarsson þýddi ejtir enskri þýðingu Rae Dalven
(The Complete Poems of Cavafy, The Hogarth Press, London, 1961).
Athugasemdir: Caesaríon var talinn vera sonur Júlíusar Caesars og Kleópötru. Alex-
ander og Ptólemeos voru synir Antóníusar. Antóníus sjálfur veitti börnum þessum nafn-
bsetur þær, sem um getur í kvæðinu. Lagus var makedónskur aðalsmaSur, einn af hers-
höfSingjum Alexanders mikla og ættfaSir Ptólemeosanna í Egyptalandi.
Konstantinos P. Kabaphes eða Constantine P. Cavafy, eins og hann er almennt
nefndur utan hins grískumælandi heims, fæddist 1863 í Alexandríu, þar sem faSir hans
var umsvifamikill kaupmaSur. Þar dvaldist hann mestan hluta ævi sinnar unz hann
lézt 1933. „AS ýmsu leyti frumlegasta skáld sinnar kynslóSar á grísku" (C. M. Bowra).
Kabaphes sótti sér yrkisefni einkum í gríska og byzanzka sögu og þó þannig, aS þau hefSu
jafnframt almenna skírskotun. LjóSstíl hans svipar til íslenzks sagnastíls, hann er raun-
sær og líkingafár, orSknappur, en sérhvert orS þrungiS merkingu. Þýdd IjóS Kabaphes
hafa haft allmikil áhrif á ýmis evrópsk skáld síSari ára, til dæmis W. H. Auden.