Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1967, Page 93

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1967, Page 93
til Sjálfstæðisflokksins gamla, og þegar hann klofnar langs og þvers 1915, þá lenti hann þversum með þeim Skúla og Bjarna frá Vogi. En nú taka fleiri þættir að blandast inn í. Róttækari armur Sj álfstæðisflokks- ins gerði samband við alþýðuhreyf- ingu verkamanna, „sem fálmandi var þá að festa rætur“, að því er Stefán segir, og 1916 var Jörundur Brynj- ólfsson sameiginlegur frambjóðandi þessara tveggja aðila við kosningar til alþingis. Stefáni fannst eitthvað nýtt vera á ferðinni, þar sem fór hin nýja hreyfing alþýðunnar. Honum datt í hug, að hér væri einmitt það, sem koma ætli. Um sama leyti skell- ur á sjómannaverkfall í Reykjavík. Það var mikill viðburður og hristi upp í fólkinu. Það kom líka við skóla- sveininn Stefán Jóhann. Einu sinni hafði hann verið skútusjómaður, og hann minntist, hve félagar hans höfðu verið góðir og störf þeirra ó- metanleg. Og Stefán rifjar þetta upp á strangheiðarlegan hátt. Hann tekur afstöðu með sjómönnunum, en ekki heils hugar. „í huga mínum hafði ég fyllstu samúð með þeim“, segir hann, en hann skorti „þrek, skilning og afl áhugans til þess að rísa til stuðnings þeim í baráttunni“, segir hann. Og hann gerir sér líka grein fyrir ástæð- unni: „Menntamannsórar lögðu enn farg á hugsanir mínar og tilfinning- ar.“ Menntamannsórar þessara ára koma víðar við sögu. Jafnaðar- ScbIít erv. einfaldir stefnan hafði fest djúpar rætur á Bretlandi, Norðurlöndum og Þýzka- landi, og áhugasamir menntamenn á íslandi sökktu sér niður í bókmennt- ir um fræðilegar hliðar sósíalismans til þess að gera sér grein fyrir lögmál- um félagslegrar þróunar. Þessar bók- menntir lásu þeir og ræddu félagarn- ir Stefán og Jón Thoroddsen. En eft- ir á áttar Stefán sig á því og lætur þess getið, að í hugum þeirra hafi leynzt „vanmat á minna skólagengn- um mönnum í forustuliði verkalýðs- ins“. Stúdentsárið sitt 1918 gerðist Stefán flokksbundinn í Alþýðuflokkn- um, og í sambandi við fyrstu kynni af hinum nýju starfsbræðrum finnst honum ,„suma fullorðna menn úr röðum verkalýðssamtakanna skorti fræðilega þekkingu og þeir miða af- stöðu sína um of við kröfur um hækkað kaup, ekki hafa til að bera hita hugsjónamannsins“. 1922 verður Stefán kandidat í lög- fræði, 28 ára að aldri, og tekur þeg- ar upp starf sem lögfræðingur. Á þessum árum er hann orðinn þess fullviss, að hann á að steypa sér af öllu afli út í stjórnmálabaráttuna. Hann viðurkennir það ósköp elsku- lega, að sterkt afl í þeirri ákvörðun var framalöngun, svo sem verða vill með ungum mönnum. Hann vildi hasla sér völl, hvergi víkja, fremur en Jón Sigurðsson. Og sigrarnir bíða á næsta leyti: Þrítugur að aldri var hann kosinn í flokksstjórn Alþýðu- 395
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.