Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1967, Side 105

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1967, Side 105
„GaldrafargiS' að tjá trúarlegan fögnuð sinn og vissu um náð guðdómsins. Þessir kaflar benda ótví rætt til trúarlegrar innlifunar, sem var ekki og er ekki óalgeng meðal trúaðra manna, án þess þó að slíkir hljóti ætíð að flokkast til mestu dulsæismanna. Það má vera að trúarleg reynsla rétttrúnaðar- manna og guðleg náðarkennd þeirra, sé af sama toga og reynsla hinna fáu miklu dulsæismanna, en millum þessara tveggja hópa er löng leið, þótt þeir ausi báðir af sama brunni. Rit sr. Jóns sýnir meðal ann- ars þann styrk, sem rétttrúnaðurinn veitti játendum sínum, en þeirra hópur var stór og ástæðulaust er að líkja öllum slíkuin við dulsæismenn. Kveikjan að fyrirlestri útgefanda er líkast til vúlger-efnishyggja tveggja aldamótamanna, sem hafa farið höndum um þetta rit og var full þörf á því, að raska kenningum þeirra, án þess þó að skipa Eyrarklerki í sveit frægustu dulspekinga. Píslarsagan er sigurhróss hug- vekja rétttrúnaðarmanns að því er sálar- heill hans varðar og ákæra á júrista þeirrar tíðar fyrir það, sem nútímamenn myndu nefna vægð við ofsótta menn, en sr. Jón nefndi forsómun valdsmanna í að fram- kvæma guðs vilja. Mál og meimmg Enn er ókomin út síðari félagsbók ársins 1967, en er væntanleg í febrúarmánuði. Er það Pan eftir Knut Hamsun í þýðingu Jóns Sigurðssonar frá Kaldaðarnesi. Raunar var búið að velja aðra félagsbók, en hún varð ekki til frá höfundarins hendi í tæka tíð. Pan kom fyrst út á íslenzku fyrir meira en fjörutíu árum, og er bókin orðin fágæt fyrir löngu; með útgáfu hennar vill Mál og menning ekki sízt votta Jóni Sigurðssyni frá Kaldaðarnesi virðingu sína, en bækur þær sem hann sneri á íslenzku eru með mestu snilldarverkum íslenzkra þýðingabókmennta. f undirbúningi er að gera nokkra skipulagsbreytingu á útgáfu Máls og menningar, og verður félagsmönnum og umboðsmönnum skýrt frá þeim málum innan skamms í sérstöku boðsbréfi. Meðal þeirra bóka sem koma út á árinu 1968, ýmist á vegum Máls og menningar eða Heimskringlu, eru þessar: JarSfrœSi eftir Þorleif Einarsson, allstór bók með miklum myndakosti ætluð bæði skólum og almenningi; hún kemur út um mánaðamótin febrúar— marz. — íslenzk þýðing á bók Sigurðar Nordals, Sagalitteraturen, sem kom út á dönsku 1953. — Sænsk skáldsaga, Markurells i Wadköping eftir Hjalmar Bergman. — Ný sk&ld- saga eftir Ólaf Jóh. Sigurðsson. — Ævisaga Skúla Thoroddsens eftir Jón Guðnason, fyrra bindi. — Ritgerðaúrval, ÞaS sem ég hef skrifaS ..., eftir Skúla Guðjónsson. — Nýtt hefti í myndlistaflokki Máls og menningar, Paul Gauguin, en fleiri myndlistarbækur eru í undir- búningi. — Heimskringla hefur nú hafið útgáfu á mjög fallegum og fróðlegum barna- bókum í samvinnu við belgískt forlag. Fyrstu tvær bækumar, Kristófer Kólumbus og Edison, eru þegar komnar út, en þriðja bókin í þeim flokki verður Shakespeare og kemur væntanlega næsta haust. Aftast í þessu hefti er birt auglýsing um útgáfubækur Heimskringlu 1967. Mönnum skal sérstaklega bent á að um leið og annað bindi af eddukvæðaútgáfu Jóns Helgasonar, KviSur af Gotum og Húnum, kom út, var sett á markaðinn ný útgáfa af fyrsta bindinu, Tveim kviSum fornum, með fáeinum breytingum og viðaukum. 407
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.