Tímarit Máls og menningar - 01.10.1969, Síða 101
Hvers vegna sðsíalismi?
gera þyrfti til að bæta úr því var sannfær-
andi, og þing Bandaríkjanna samþykkti
hjálparáætlun hans, kennda við „Fram-
farabandalag". Nú, sjö árum síðar, er að
heita má öllum ljóst að á þessari áætlun
er einn alvarlegur galli — hún nær ekki
tilgangi sínum. Ástæðan er ekki sú að
fjárveitingamar hrökkvi of skammt — á-
ætlunin mundi ekki ná tilgangi sínum þótt
fjárveitingarnar væru tífaldaðar.
Hún nær ekki tilgangi sínum sökum þess
að hún hróflar ekki við þeim imperíalist-
ísku afstæðum sem eru undirrót ástands-
ins sem Bandaríkin segjast vilja bæta.
Ríki rómönsku Ameríku eiga gnægð auð-
linda, en þjóðimar eru fátækar vegna þess
að það er slagsíða á efnahagskerfinu; arð-
urinn af auðlindunum rennur til banda-
rískra einokunarhringa sem hafa afskræmt
efnahagskerfið með einbeitingu sinni að
því að vinna arðbær hráefni. Það land sem
ekki er í höndum erlendra aðila er í eigu
innlendrar borgarastéttar — hinnar fornu
yfirstéttar landeigenda sem nú er í slag-
togi við atvinnurekendur á sviði fjármála,
verzlunar og framleiðslu. Mikið af land-
inu er í órækt og annað er nýtt miður en
skyldi. Engar grundvallarbreytingar eru
hugsanlegar f>Tr en þessir tveir valdahóp-
ar — erlendir og innlendir kapítalistar
hafa neyðzt til að afsala sér völdum, eign-
um og forréttindum, fyrr en búið er að
framkvæma róttækar breytingar á efna-
hagslegri og félagslegri gerð þessara þjóð-
félaga í rómönsku Ameríku. Þangað til
mun alþýða manna halda áfram að svelta.
Efnahagsáætlunin leiðir ekki til þess
sem Kennedy spáði vegna þess að hún
færir ekki ríkjum rómönsku Ameríku raun-
vemlegt fullveldi, hún losar ekki það
efnahagslega kverkatak sem imperíalismi
Bandaríkjanna hefur á álfunni allri. Án
raunverulegs fullveldis munu ríki róm-
önsku Ameríku í verki halda áfram að
vera hjálendur hins bandaríska heimsveld-
is. Og meginvandamál þeirra stafa einmitt
af því að þau hafa verið og eru hjálendur
af nýlendutagi.
Ef Framfarabandalagið leysir ekki
vandamál rómanskra Ameríkuríkja, hvar
er þá lausnina að finna? Sósíalisminn er
svarið. Rómanska Ameríka verður eins og
önnur vanþróuð svæði hnattarins að taka
upp sósíalisma vegna þess að kapítalism-
anum, sem verður ekki skilinn frá imper-
íalismanum, er um megn að efla í van-
þróuðum ríkjum þá öru hagþróun sem ó-
hjákvæmileg er til þess að tryggja hrað-
vaxandi þjóðfélögum bætt lífskjör.
Sósíalisminn myndi hins vegar gera
ríkjum rómönsku Ameríku kleift að gera
þær ráðstafanir sem búa í haginn fyrir
hagþróun. Enda þótt stjórnmálalegt full-
veldi sé afar mikilvœgt hrekkur það ekki
til; ríki rómönsku Ameríku verða einnig
að tryggja sér efnahagslegt fullveldi. Og
efnahagslegt fullveldi felur það í sér að
þessi ríki verða sjálf að ráða yfir verð-
mætisauka efnahagskerfisins svo að hægt
sé að nota hann til fjárfestingar í fram-
leiðslutækjum í þágu áætlunarbúskapar
sem taki til þjóðarinnar allrar, en til þess
þarf þær víðtæku félagslegu breytingar
sem jafngilda byltingu, og sósíalisma.
Sunnudaginn 4ða desember 1960 fjall-
aði öldungadeildarþingmaðurinn Mike
Mansfield um „Meginvandamál rómönsku
Ameríku" í Neui York Times Magazine:
Hér eru tillögur hans um það sem gera
þyrfti ef ríki í rómönsku Ameríku vildi
sækja frarn:
1) Það yrði tafarlaust að gera ráð-
stafanir til þess að draga úr þeim sára
skorti á matvælum, húsnæði og heilsu-
gæzlu sem tugir milljóna manna eiga
við að stríða.
2) Það yrði að framkvæma umbætur
í landbúnaðarmálum með því að taka
195