Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1971, Page 29

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1971, Page 29
Um byltingaróþreyju sömu forsendur til grundvallar þeim. „Afstaða anarkista er sprottin af óskhyggju, en óskhyggja er í sjálfu sér ekki bundin við byltingarsinnuð viðhorf; liún getur alveg eins samrýmzt hugmyndafræði sem forðast byltingu.“ AS dómi höfundar vantar báðar stefn- urnar það sem hverri byltingu er nauðsynlegast: þol, úthald. Sjónmál þeirra beggja tak- markast við nútíðina; „núna“, „í dag“ eða í hæsta lagi „þessi kynslóð" er sá tími sem þær miða allt við. Hér verður að endingu birt það sem Wolfgang Harich skrifar um byltingarástandið sem upp kom í Frakklandi 1968. „f bók sinni um atburðina í maí—júní segja Cohn-Bendit-bræðumir að þar hafi verið um að ræða raunverulegt byltingarástand sem hefði getað leitt til sigurs fransks verka- og launafólks og fært því yfirráð yfir framleiðslunni. Þeir lýsa sök á hendur skriffinnsku- bákni frönsku verkalýðssamtakanna — að leiðtogum kommúnista í þeim samtökum ekki undanskildum — og á hendur þingmönnum vinstri flokkanna, frá Waldeck-Rochet til Mitterands, fyrir að þetta gerðist ekki og glatað var einstæðu tækifæri til að kljúfa eitt af helztu iðnaðarríkjum Vesturlanda út úr auðvaldsheiminum og gera það að ból- verki sósíalisma. Vel má vera að þeir hafi rétt að mæla. Þegar svo að segja allt vinnandi fólk í kapítah'sku landi stendur í verkfalli í fimm vikur, tekur vinnustaðina í sínar hendur og kemur upp vísi að ráðstjórn, þá er það ekki lengur vottur um byltingarbráð- læti þó talað sé um að unnt sé að snúa ástandinu verkalýðsstéttinni endanlega í hag. Vinstri stjómmálamenn sem á slíkri stundu, þegar tíu milljónir verkamanna og launafólks rísa upp fyrirvaralaust, hafa ekkert betra til málanna að leggja en að flytja platónskar vantrauststillögur í Þjóðþinginu, verkalýðsleiðtogar sem fara að gera launasamninga við ríkisstjórn og sambönd atvinnurekenda í stað þess að vinna að því að verkfallsmenn geti hafið framleiðslu að nýju, undir eigin stjórn, án kapítalista og kapítalískrar verkstjómar — þeir eiga vissulega skilið hlífðarlausa gagnrýni. Vikum saman, allt fram til 29. maí, gafst þeim færi á að koma á fót ráðstjómarkerfi, tengdu vinnustöðum og kjördæmum. Ef rétt hefði verið á haldið hefðu hin opinberu stjómvöld orðið að láta æ meir undan síga fyrir ráðunum, án þess að geta beitt valdatækjum sín- um svo umtalsvert væri. En ástæðan til þess að vinstri hreyfingin missti þetta tækifæri út úr höndunum á sér var augljóslega sú, að forystumenn hennar vom hættir að trúa á aðrar baráttuaðferðir en þingræðisleiðina og höfðu gleymt ráðstjórnarhugmyndinni. Þannig hefur það sem gerðist í maí—júní 1968 ekki einungis afsannað kenningar um að verka- menn í velferðarþjóðfélagi séu endanlega orðnir fráhverfir byltingaraðgerðum. Það hefur einnig sýnt fram á það með ótvíræðum hætti að það er enn sem fyrr borgarastétt- inni í hag, þegar verkalýðsforingjar eygja ekki önnur úrræði en að hengja sig í gild- andi lagaákvæði." Þorsteinn Þorsteinsson þýddi og endursagði. 107
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.