Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1971, Page 99

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1971, Page 99
er ég óhrædd, en ef þau gengju úr skorð- um yrði ég hrædd.“ Þráttfyrir fjölbreytni sagnanna í bók Drífu virðast mér þessar sex samstæður ráða mestu um yfirbragð hennar. Hún er gædd kyrrlátum þokka sem á einmitt rætur sínar í næmu náttúru- skyni og þeirri einlægni hjartans sem ekki kann að villa á sér heimildir. Drífa Viðar átti skammt ólifað þegar hún hóf að birta ritverk sín. Það er til lítils að spá í fram- tíð sem ekki varð, en þó býður mér í grun að fráfall Drífu hafi svipt okkur mörgum prýðilegum sögum. Þorsteinn frá Hamri. Við sagnabrnnninn Rannveig Sigfúsdóttir frá Skjögrastöðum í Skógum, móðuramma mín, mun hafa orðið til þess fyrst manna hér á landi að segja bömum sögur við hljóðnema. Þá var út- varpið enn þá einkafyrirtæki. Hún sat þá í bergmálskompunni með prjónana sína, rétt eins og heima hjá sér, og þuldi sem hægast af munni fram. Kvikur er hver um kunnugan rann. Hún hafði minni fádæma glöggt, og daglegt mál hennar var stílfast eins og fornsögurnar, svo að hún lék það oft að segja heilar skáldsögur líkast því sem hún læsi af bók, með setningi, íhygli og óhagganlegri ró. Þar var hvert orð á sín- um stað, svo að fáu hefði þurft að víkja við í eftirriti. Frásagnargáfa Sigríðar dóttur hennar var af öðrum toga, og bar frá hve hún var sjálfkrafa, skyggn og skapandi. Það sem söguhetja George McDonalds í furðukver- inu „Phantastes“ segir um lestur sinn í „bókum“ álfa, að hann hvarf inn í frásögn- ina og lifði alla atburði í raun og veru, — það á við um náðarstundir okkar systkin- anna við sagnaskemil Siggu frænku. Hvað aldirnar eða andartakið áttu f sumum sög- Umsagnir um bœkur unum hennar, eða hvort allt fór með felldu um stfl og mál, — það vissum við aldrei. En hún stillti hugi okkar svo næmri still- ingu, að hún gat brugðið blæ sögunnar með því að depla auga eða blaka svuntu sinni. Súgur af fýsispjaldi, fölskvamyndir af glóð, hvað eina, og ekki sízt þögnin, lagði sitt til mála í þessari ævintýrafrásögn, sem naumast verður færð í letur nema til hálfs. — „Borgin fyrir austan tungl og sunnan sól“ — hvílík vonbrigði, er við sá- um hana síðar á prenti! Minningar þessu líkar má ætla að vakni nú víða um land, ýmist þegar flett er fyrsta bindinu af „Þjóðsagnabókinni" hans Sig- urðar Nordals eða því sagnasafni, sem hér greinir frá. Brezki háskólakennarinn Alan Boucher, er skipaði sess ömmu minnar um skeið á hljóðbergi úti í Lundúnum, Shake- speare-þýðandinn Helgi Hálfdanarson og ævintýralýsandinn Barbara Árnason hafa lagt saman um að að gera af fornum föng- um nýja bók, sem kom á markað núna í haust og heitir „Vi3 sagnabrunninn“,1 Boucher endursegir, Helgi íslenzkar og Barbara lýsir þar sígild sagnaminni og æv- intýri, tuttugu að tölu, sum alkunn, en önn- ur ókunn hérlendis. Rætur þeirra er víða að rekja með þjóðum og sumra um árþús- undir, svo að lauf á þessum lundi er með afarmikilli fjölbreytni. Þó að fæstum bókmenntaverkum sé sköp- uð löng vist í Ijósinu, heldur þokað í skuggann fyrir öðrum nýrri, og eins þótt sígild séu, þá hafa helgar ritningar, Eddur og Vedur, ævintýri og goðsagnir þjóða slíkt frummenntagildi, að kynslóðir manna hafa jafnan varpað á þær hver sinni birtu til að upplýsast af þeim. Eitt þeirra verka eru kviður Hómers; en þrjár af endursögnum Bouchers eru til þeirra sóttar. 1 Mál og menning. 252 bls. auk 6 lit- mynda á sérblöðum. 12 TMM 177
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.