Tímarit Máls og menningar - 01.11.1971, Side 109
Úr einkaskeyti. til Mbl. frá Ass. Press, tek-
iS úr U.S. News & if orld Report 27. júlí.
Nauðsyn — nauðsyn — nauðsyn
„Varnir á íslandi eru nauffsyn, ill nauð-
syn getum við sagt, en nauffsyn engu að
síður. Auðvitað vildum við Sll geta verið
laus við það að hafa hér hervarnir, og sá
tími kemur vonandi að þeirra verði ekki
þörf. En sízt er ástæða til að draga úr
vörnunum, þegar ógnir eru auknar af hálfu
hinna austrænu yfirgangsmanna og ásælni
þeirra er einmitt í næsta nágrenni við okk-
ur.“
LeiSari 10. ágúst.
Eina tryggingin
„Ég hafði minnst á þá hættu, sem að ís-
landi gæti steðjað ef til þess kæmi að
Bandaríkin teldu ekki lengur aðstöðuhlunn-
indi að herstöð hér á Jao'li, vestrænt varn-
arkerfi gæti með öðrum orðum án hennar
verið — eða þá að Bandaríkin teldu „hvort
eð er samkvæmt samningum skylt að láta
undan óviturlegum óskum íslenzkra stjóm-
arvalda um heimkvaðningu varnarliðsins.
Þá gæti þess verið skammt að bíða, að úti
væri um ísland."
Um það er ég sannfærðari með hverju
ári. Enn sannfærffari nú en í fyrra sumar,
þegar ég skrifaði um þessi mál.
Eina trygging fyrir því að við íslending-
ar getum áfram búið óáreittir í landi okkar,
er ameríska herstöðin í Keflavík, því vegna
hennar verður árás á Island að árekstri við
Bandaríkin.
Við ættum að verða áfram í Atlantshafs-
bandalaginu, er okkur sagt — þjóðum þess
á að leyfast að koma okkur til hjálpar, ef
HiS mikla föSurland
með þarf, enda þótt við vildum ekkert á
okkur leggja til eflingar vestrænu vamar-
kerfi.“
Kristján Albertsson 12. ágúst.
íslendingseðlið
„Við munum spyrja sjálfa okkur, hvaff
getum við af mörkum lagt, er tímabært, aff
við tökum að einhverju leyti þátt í varnar-
starfinu t. d. með þjálfun sérfræðinga, sem
starfað gætu hér á landi við hlið banda-
manna okkar í Atlantshafsbandalaginu?
Slíkt er og verður vonandi ætíð íslendings-
eðlið.“
LeiSari 15. ágúst.
Ótti við sannleikann
„Sannleikurinn er sá, að við, sem berj-
umst gegn kommúnisma, kynokum okkur
oft við að segja sannleikann um þessa ógn-
arstefnu. Við viljum helzt ekki þurfa að
trúa því, að sannleikurinn sé sannleikur.“
Reykjavíkurbréf 15. ágúst.
Von?
„Lýðræðisflokkana hér á landi hefur ekki
greint á um nauðsyn þess, að ísland eigi
að vera meðlimur í Atlantshafsbandalaginu,
og ég held að þeir, sem þessa afstöðu hafa
haft, hafi jafnan gert sér ljóst, að eitthvað
þyrftum við og vildum á okkur leggja til
þess að njóta öryggis af vernd annarra og
sameiginlegs varnarkerfis. Ég vona, að mál-
ið komist í farsælan farveg í viðræðum
utanríkisráðherra við Bandaríkjamenn, sem
hann hefur boðað að hefjast muni á næsta
ári. Þetta er eitt þeirra stórmála, sem ekki
er hægt að afgreiða með fljótfærnislegri
pólitískri léttúð.“
ViSlal viS Jóhann Hafstcin 2. sept.
187