Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1982, Síða 38

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1982, Síða 38
Tímarit Máls og menningar bókmenntir og listir: „Form listaverks er ekkert annað en fullkomin skipulagning innihalds þess, gildi formsins er því fullkomlega háð innihaldinu." 2. Það er rækilega undirstrikað að listin eigi sér engan samastað í raunveruleikanum, heldur sé hún þvert á móti sjálfstæður heimur sem gera þurfi barninu aðgengilegan. Hér er enn um misskilning að ræða, sem er reyndar dæmigerður fyrir hið borgaralega viðhorf til listarinnar, er miðar að því að skilgreina listina sem sérstætt fyrirbæri, óháð raunveruleikanum. Að skilningi þeirra sem standa að hinu borgaralega barnaleikhúsi er listin hugtak sem haft er um sjálfstæðan heim: heim ljóðsins, fegurðarinnar, ævintýrisins, skáldskaparins og — einsog hvað eftir annað er tekið fram — heim ímyndunaraflsins. Það er í fyllsta samræmi við þennan skilning á listinni þegar finnsk-sænski rithöfundurinn Christina Anderson segir í grein sem birtist í Þjóðviljanum 1. apríl 1981 undir heitinu „Barnaleikhús er spennandi": „Eg vil leyfa fantasíunni að njóta sín.“ Andspænis þessum fjölskrúðuga hugtakareit langar mig að gaumgæfa nánar (hið bláa) blóm ímyndunaraflsins. Hvernig vill Christina Anderson stuðla að því að ímyndunaraflið fái að njóta sín? Til að fá svar við þeirri spurningu skulum við líta á leikrit hennar „Kóngsdóttirin sem kunni ekki að tala“, en þetta leikrit setti Þórunn Sigurðardóttir á svið í Alþýðuleikhúsinu veturinn 1980—81. I umræddu leikriti er ekki einungis verið að flytja áhorfendum þann „manneskjulega og skynsamlega boðskap“ að mönnum sé skylt að haga breytni sinni við heyrnleysingja á þann veg að þeir síðarnefndu njóti sömu réttinda og aðrir. Hitt er ekki minna um vert, að þessi lífsnauðsynlegi skáldskapur á aukreitis að vera gæddur meðvituðum skáldlegum neista. Hinn skáldlegi neisti birtist okkur með þeim hætti að vandamál heyrnarlausra eru slitin úr öllu samhengi við okkar eigin raunveruleika og færð inní veröld kónga, kóngs- dætra, prinsa og dreka — þeim er m. ö. o. valinn staður í ríki sem líta má á sem einhverskonar sambræðing konungsveldis og ævintýris. Hér fær ímyndunaraflið semsé að blómstra, — þetta er hin mikla opinberun skáldskaparins! Þarmeð hefur skáldskaparlistinni verið markað- ur bás í ímynduðum og óraunverulegum heimi. Við skulum taka annað dæmi: „Vatnsberana“ eftir Herdísi Egilsdóttur, sem Þórhildur Þorleifsdóttir leikstýrði veturinn 1978 — 79 og sömuleiðis var sýnt á fjölum Alþýðuleik- hússins. Sá „manneskjulegi og skynsamlegi boðskapur", sem fluttur er í þessu verki, hljóðar svo: Það á ekki að skopast að eða níðast á þeim, sem eru öðruvísi en fólk er flest, heldur eiga allir að gera sér far um að lifa í sátt og samlyndi í hinum fjölskrúðuga mannlífsreit. Listræn umgjörð þessa boðskapar er á þann veg, að við erum leidd inní veröld þarsem persónurnar 404
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.