Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1982, Page 42

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1982, Page 42
Tímarit Máls og menningar okkar tímum, þarsem litið var á börnin sem smávaxið fullorðið fólk, tók þó alla vega tillit til þess, að börnin vilja láta taka sig alvarlega.“‘ (W. Benjamin, Uber Kinder, Jugend und Erziehung, Frankfurt a.M. 1970). Niðurstöðu þessa stutta sögulega innskots má orða á eftirfarandi hátt: Sögulegar rætur þeirra uppeldissjónarmiða, sem gætir í hinu borgaralega barnaleikhúsi samtímans, má rekja til rökhyggju upplýsingarinnar; á hinn bóginn hefur gagnrýni hins borgaralega barnaleikhúss á „einsýni“ rökhyggj- unnar aldrei náð að hefja sig yfir ákveðin rómantísk viðhorf. Sé eingöngu tekið mið af svonefndri síðrómantík er jafnvel unnt að halda því fram að fyrrnefnt barnaleikhús feli í sér ákveðna afturför með hliðsjón af viðhorf- um rómantísku stefnunnar. Því til stuðnings má t. d. benda á síðari verk þýska skáldsins E. T. A. Hoffmanns. I skrifum sínum um bernskuna fjallaði Hoffmann m. a. um ýmiskonar sálrænar þrengingar og hrylling þessa æviskeiðs sem mönnum hættir til að gleyma, og sýndi með skrifum sínum að ýmsar af furðum bernskunnar eru í raun óhugnanlegar. Með þessu móti losaði hann sig úr viðjum hins borgaralega viðhorfs til bernsk- unnar og vakti jafnframt máls á ýmsu sem „sálkönnunin" átti eftir að staðfesta með fræðilegum rökum tæpum hundrað árum síðar. Það vaxandi sálfræðilega raunsæi sem finna má í rómantískum bernsku- lýsingum allt frá hinum unga Tieck til Hoffmanns kippir að endingu stoðunum undan heimspekilegu og skáldlegu grundvallarviðhorfi róman- tísku stefnunnar sjálfrar (sjá: Horst Meixner, Romantischer Figuralismus. Kritische Studien zu Romanen von Arnim, Eichendorff und Hoffmann, Frankfurt a.M. 1971, bls. 187 o. áfr.). ímyndunarafl og raunveruleiki Hér að framan hefur verið reynt að sýna hvernig þeir sem standa að hinu borgaralega barnaleikhúsi gera sig hvað eftir annað bera að því að slíta hugtökin „ímyndunarafl" og „skáldskapur“ úr öllu félagslegu og sögulegu samhengi. I framhaldi af þeim orðum langar mig að víkja að því hvernig höfundarnir sjálfir réttlæta slíkt háttalag; eða m. ö. o. hvernig þeir sjálfir skilja uppeldislegt hlutverk leikrita sinna. Sú formúla sem hvað eftir annað heyrist í þessu sambandi hljóðar svo: með uppeldinu verður að hafa örvandi áhrif á hugsun og ímyndunarafl barna, auk þess sem þörf þeirra fyrir sjálfsprottnar (spontan) athafnir 1 „Und in diesem heut so gern beláchelten Rationalismus, der im Kinde den kleinen Erwachsenen sah, ist jedenfalls dem Ernst als der Kindern gemássen Spháre sein Recht geworden." 408
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.