Tímarit Máls og menningar - 01.09.1982, Qupperneq 48
Tímarit Máls og menningar
áskynja í leikhúsinu að ekkert sé sjálfsagðara en að skoða vandamálin í
kátlegu ljósi. Það verður að komast á hreint að skrýtlan sem sögð er um
raunveruleikann er engu síður skemmtileg og fyndin en hin, sem sögð er í
því augnamiði að beina athyglinni frá honum.
Auk gagnrýninnar er skopið mikilvægur þáttur í starfi alþýðttleikhúss
sem tekur hörnin alvarlega. Hláturinn leysir okkur úr viðjum fortíðarinn-
ar. Með því að hlæja sýnum við að við höfum skilið ákveðnar aðstæður og
höfum vald á þeim. Gleðileikurinn er fullur af bjartsýni, — í honum sigrar
alltaf áðuren yfir lýkur sá kraftur sem stefnir fram, m. ö. o. það sem er þess
virði að fyrir því sé barist. Skopið er sjálfsagðasta og beittasta vopn
listarinnar. I barnaleikhúsi gegnir skopið tvennskonar hlutverki. Veik
aðstaða barnanna sjálfra kennir þeim fljótt að bregða sér í líki hinna
skoplegu persóna og beita lævísri „sjálfslítillækkun“ til að ná fram vilja
sínum gagnvart hinum sterkari. Og ekki má heldur vanmeta þau uppeldis-
áhrif sem skopið hefur. Það á ekki aðeins við um börnin heldur okkur öll,
að við erum ekki sérlega námfús ef kennarinn nýr okkur villum okkar og
aumingjaskap stöðugt um nasir. Barnaleikhús verður að skemmta áhorf-
endum sínum með því að kynna þeim hlutina og kitla forvitni þeirra.
Sérhver skrýtla sem leikararnir bera á borð verður að hafa í sér falinn
sannleiksbrodd. Leikritin sem um ræðir verða að gefa leikurunum færi á
slíku. Og sannleikurinn er fólginn í kviku raunveruleikans sjálfs. . .
Arthúr Bjórgvin Bollason þýddi í samráði við höfund.
Heimildaskrá
Anderson, Christina: „Barnaleikhús er spennandi.“ Þjóðviljinn 1.4. 1981
Benjamin, Walter: Uher Kinder, Jugend und Erziehung. Suhrkamp, Frankfurt
a. M. 1970
Benjamin, Walter: Versuche úher Brecht. Suhrkamp, Frankfurt a. M. 1971
Bettelheim, Bruno: The Uses of Enchantment. Alfred A. Knopf, Inc., New York
1975
Bloch, Ernst: Spuren. Suhrkamp, Frankfurt a. M. 1969
Brauner, Alfred: Nos livres d’enfant ont menti! Paris 1951
Brecht, Bertolt: Zur Literatur und Kunst, in: Gesammelte Werke. Suhrkamp,
Frankfurt a. M. 1967
Brecht, Bertolt: Zum Theater, in: Gesammelte Werke. Suhrkamp, Frankfurt a. M.
1967
Glockemann, Riidiger: Kindheit in der romantischen Dichtung E. T. A. Hoff-
manns und Ludwig Tiecks. (Ópr. handrit, Göttingen 1979)