Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1982, Page 62

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1982, Page 62
Tímarit Máls og menningar buxum og konurnar ilmuðu af dýrum ilmvötnum. Meðal þeirra voru gamlar konur og virðulegar frúr sem gengu við silfurbúinn staf. Listfræðingurinn talaði af þeirri andagift og heillandi framsetningu sem frönskum menntamönnum einum er lagið. Framsetning og form- festa efnis og máls líktist skemmtigarði, velsnyrtum og akademískum, en jafnframt var hinn andlegi reitur ljóðrænn og andagift fyrirlesarans var hlýr en vekjandi andblær. René varð hvergi á í messunni þrátt fyrir óeirðirnar fyrir utan og hann lýsti innri gerð listar Leonardos af glöggu innsæi. Þegar fyrirlestrinum lauk og hið prúðbúna og hámenntaða fólk gekk settlega og skipulega út án troðnings höfðu einhver byltingarsamtök landbúnaðarverkamanna tekið Gulbenkíanstofnunina herskildi og gef- ið hana af sínu örlæti allri þjóðinni. „Þjóðin á þessa stofnun og fólkið,“ sagði tötrum klæddur bóndi sem sá eflaust stofnunina aðeins sem stórt og reisulegt hús en grunaði ekki hið andlega hlutverk hennar. Hið prúðbúna hámenntaða fólk sá hinn æsta gjafmilda lýð en lét sem ekkert hefði gerst, þótt það hefði kafnað úr svitalykt í þvögunni ef ilm- vötnin góðu hefðu ekki varið nasir þess. Hölt eldri kona með rauðmáluð kinnbein gekk í áttina að hinum æsta lýð og studdist við silfurbúinn staf. Hún hugðist skoða ritverk Renés sem voru til sýnis í glerkassa innarlega á ganginum. Þar voru landbúnaðarverkamennirnir hvað æstastir og strengdu þess heit og fullvissuðu sjálfa sig með hrópum „að sameinað verkafólk verði aldrei sigrað“. Þetta var eitt af kjörorðum byltingarinnar. Þegar hin gamla, halta, snyrta og örlítið afdankaða frú lyfti veikbyggðum silfurbúna stafnum hörfuðu hinir samanreknu verka- menn undan henni í lotningu og hrökkluðust inn í aðalfyrirlestrasal stofnunarinnar. Fjöldi fagurbúinna kvenna fylgdi höltu kynsystur sinni og lét fögur orð falla um ritverk Renés, einkum um Les puissances de l’image, enda er háttur menntaðs fólks að hrósa upp í hástert því sem það hefur hvorki lesið né hefur hugmynd um eða skilur. Tveir karlmenn og þrjár konur, þar á meðal sú halta, renndu augum inn í stóra fyrirlestrarsalinn að verkamönnunum, og kona spurði: Hvaða fólk var þetta annars? Byltingarmenn, svaraði maðurinn. Ekki rak ég augun í þá á fyrirlestrinum um hina byltingarsinnuðu list Leonardos, sagði konan. Hvaða erindi eiga þeir þá? 428
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.