Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1982, Page 65

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1982, Page 65
Ástrádur Eysteinsson Bókmenntagagnrýni dagblaðanna 1. Formálsorð og fyrirvarar Gagnrýni er nauðsynleg í bókmenntum og listum eins og á öðrum sviðum þjóðlífsins. Rithöfundar og listamenn þarfnast aðhalds frá þjóðfélaginu og einn meginþáttur þess aðhalds er opinber gagnrýni. En hitt vill oft gleymast að gagnrýnin sjálf þarfnast einnig aðhalds og það þarf að vera víðtækara en kvartanir yfir einstökum ritdómum. Það þarf líka að gagnrýna gagnrýnina. Hér á eftir verður fjallað um blaðagagnrýni bókmennta og er nauðsyn- legt að gera greinarmun á henni og fræðilegri gagnrýni í bókmenntaritgerð- um. Fræðigreinar eru oftast ítarlegri og kafa dýpra í einstaka þætti skáldverka. I þeim er oftast hægt að gera ráð fyrir fyrirfram þekkingu lesenda á viðfangsefninu, en slíkt getur blaðagagnrýnandinn vart leyft sér. Hann þarf hins vegar ekki, eins og bókmenntafræðingurinn, að gera grein fyrir því innan hvaða rannsóknarramma hann vinnur og hvaða aðferðum hann beitir. I blaðagreinum er einnig minna um fræðilegan rökstuðning og undirbyggingu gagnrýninnar (enda rýmið yfirleitt minna) og þar er lítið sem ekkert um beinar og ættfærðar tilvitnanir í aðrar bækur eða fræðirit. A hinn bóginn getur blaðagagnrýnandinn sjaldan „stytt sér leið“ með notkun fræðilegra hugtaka, því sífellt verður að hafa í huga að efnið er ætlað hinum almenna blaðalesanda. Þó má segja að blaðagagnrýnandinn búi við mun meira frelsi en fræðimaðurinn, bæði í framsetningu og uppbyggingu; hvers konar útúrdúrar, innskot og hugleiðingar geta orðið mun eðlilegri í meðförum hans, auk þess sem hann ræðir oft hvernig honum hafi líkað lestur bókarinnar, hvernig hún hafi verkað á hann o. s. fr. en slíkt er sjaldgæfara í fræðiskrifum. Þetta „frelsi“ þýðir þó ekki að röksamhengi blaðadóma megi vera minna en í fræðiskrifum; það verður ætíð að standast rýni lesandans. A milli þessara tveggja gagnrýniflokka má svo ætla stað ritdómum í bókmenntatímaritum eins og TMM og Skírni, en ekki ætla ég að meta hvorum flokknum þeir standa nær, enda mun þar eflaust bregða til beggja átta. Um fræðilega gagnrýni hefur mikið verið skrifað og vantar ekki að forsendur hennar, aðferðir og hlutverk hafi verið rækilega skilgreind og gagnrýnd frá ýmsum hliðum. Fátt hefur hins vegar verið skrifað um blaðagagnrýnina og sætir furðu hve lítt þeirri gagnrýni er sinnt sem snýr að 431
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.