Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1982, Síða 66

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1982, Síða 66
Tímarit Máls og menningar hinum almenna lesanda bókmennta og er ekki síður mikilvæg en hin fræðilega. Einstaka greinar eru þó til um blaðagagnrýnina og mun ég vitna í nokkrar slíkar (aðallega þýskar), en fyrst og fremst mun ég skoða nokkra íslenska ritdóma. Eg mun leggja aðaláherslu á blaðadóma um þrjár bækur frá síðasta ári: Sólin og skugginn eftir Fríðu Sigurðardóttur, Haustið er rautt eftir Kristján Jóhann Jónsson og I sama klefa eftir Jakobínu Sigurð- ardóttur.1 Einnig mun ég minnast á dóma um 1 borginni okkar eftir Véstein Lúðvíksson og Punktur punktur komma strik eftir Pétur Gunnarsson. Hvorki mat mitt á þessum ritdómum né aðrar skoðanir mínar um gagn- rýnina koma frá „hlutlausum“ eða „hlutlægum" sjónarhóli bókmenntafræð- innar. Það er einmitt helsta goðsögn gagnrýninnar að mat ritdómara og smekkur geti haft eitthvert hlutlægt gildi.2 Hins vegar ætti greining þeirra á verkum að stefna að hlutlægni, þó svo henni verði aldrei náð að fullu, m. a. vegna þess að mat verks (þ. e. þann persónulega dóm sem gagnrýnandi fellir um það) og greiningu þess er aldrei hægt að skilja fullkomlega í sundur. — Eg ætlast sem sagt til að skrif mín verði lesin gagnrýnum augum; í grein sem þessari er ekki minnst á slíkt að ástæðulausu, því það skal strax tekið fram að margir gagnrýnendur virðast ekki gera ráð fyrir gagnrýnu hugarfari lesenda sinna, hvað þá að þeir reyni að ýta undir það. Að auki er vert að taka fram að skrif mín má ekki skoða sem vörn fyrir viðkomandi rithöfunda eða verk þeirra. Þar sem ég hef tekið neikvæða afstöðu til málflutnings ritdómara er ég ekki að ráðast gegn skoðunum hans, heldur að gagnrýna framsetninguna. Aður en vikið verður að sjálfum ritdómunum er ástæða til að snerta á ýmsum veigamiklum þáttum gagnrýninnar. 2. Hlutverk blaðagagnrýni og staða gagnrýnandans Hvert er hlutverk bókmenntagagnrýninnar í þjóðfélaginu? Hverju þarf gagnrýnandinn helst að sinna er hann skrifar ritdóm um skáldverk? Ekki ætla ég að reyna að gefa einhlít svör við þessum stóru spurningum, en ýmsum vangaveltum koma þær óneitanlega af stað. Hinn kunni þýski rithöfundur og gagnrýnandi Reinhard Baumgart lýsir í grein yfir mikilli óánægju með stöðu blaðagagnrýninnar og segir m. a.: Bóksalar, bókaútgefendur og höfundar vita nákvæmlega hvað ritdómar eru fyrst og fremst nú á tímum: ókeypis bókaauglýsingar. Einungis ritstjórar bókmenntasíðna dagblaðanna og ritdómaralið þeirra virðist ekki gera sér grein fyrir þessu hlutverki þeirra.3 Þetta eru stór orð og ég vil alls ekki taka svo djúpt í árinni að segja íslenska 432 J
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.