Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1982, Page 112

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1982, Page 112
Umsagnir um bækur „Á ÞESSUM DÆGRUM TÖFRA“ Stefán Hörður Grímsson hefur nú sent frá sér nýja ljóðabók eftir 11 ára hlé, litla og yfirlætislausa bók með 21 ljóði.1 Ljóðin sverja sig að talsverðu leyti í ætt við næstu bók á undan, Hliðina á slétt- unni; þau eru styttri en áður gerðist og framsetning hnitmiðaðri. Hið persónu- lega, ferska líkingamál Stefáns er samt við sig. Þarna birtist einatt list hins ó- sagða, þess sem gefið er í skyn með framandlegum, óvæntum líkingum, jafnvel leik með fjarstæður eins og löngum fyrr. En það er ekki aðeins form Stefáns Harðar sem hefur tekið breytingum, yrkisefnin eru að nokkru leyti önnur. Náttúru- og ástarljóð hafa alltaf skipað stóran sess í ljóðum Stefáns, en kannski aldrei eins og nú. Nú er jafnvel eins og þessi ljóð hafi þokað burt öðrum yrkis- efnum sem fyrirferðarmikil voru í fyrri bókum. Margt kemur þó einnig kunn- uglega fyrir. Eins og t. a. m. í Hliðinni á sléttunni leikur Stefán sér hér með tvöfalda merkingu orða (Sagarhljóð, Fyrirbæn). Ef til vill má skilja fyrsta kvæðið, Þegar ekið er (9) sem fortíðar- skírskotun í ætt við Bifreiðin sem heml- ar hjá rjóðrinu í Svartálfadansi. Skír- skotun til fortíðar þjóðarinnar bregður einnig fyrir í kvæðinu Syngjum fyrir fugla: Stillum í hóf sögum um göfugan uppruna en hefjum til dæmis söng fyrir fugla (11) 1 Farvegir. Ibunn. Reykjavík 1981. Annars er lítið um vísanir út fyrir kvæðin. Meginstef þessa ljóðs er nátt- úruunaður, vor, litadýrð, þögn sem leitar í faðm söngsins — og röddin hvíta sem brýst inn í ljósaskiptunum. Náttúr- an skipar stóran sess í þessari bók eins og fyrr segir. Athyglisvert er að eina beina ádeiluljóðið í bókinni beinist að firringu frá náttúrunni (Hornborð 18). Dæmigert náttúrukvæði þessarar bókar er hið örstutta og fallega ljóð Grásteinn: Grunur um huldu sumarfugl köngurló að spuna Aldrei líta þig framar nokkur augu (12) Þetta er sumarmynd, blandin dulúð, orðfá og sérkennileg. En hvert er tilefni ljóðsins? Er þetta t. a. m. bernskuminn- ing eða mynd þeirrar náttúru sem hefur verið raskað og bylt? Slíkt verður ekki fullyrt og er reyndar aukaatriði, mestu skiptir sú fíngerða mynd hverfullar feg- urðar sem brugðið er upp þannig að allt verður numið og skynjað á nýjan hátt. Um leið verða óglögg mörkin milli undurs og veruleika. I ljóðinu Dögun er fyrirsögnin ó- eiginlegrar merkingar. Þetta er ekki venjuleg dagskoma heldur tímamót, stund nýrrar reynslu sem er slík að jafnvel draumarnir fara hjá sér frammi fyrir henni. Heimanbúnaður mannsins ber keim af ritúali þegar hann gengur á vit hins dularfulla og óþekkta: 478
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.