Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.1986, Side 18

Tímarit Máls og menningar - 01.02.1986, Side 18
Tímarit Máls og menningar vóru því mjög andvígir að Danir létu handritin af höndum og báru meðal annars við alþjóðlegum anda og eðli vísindanna. Þessari röksemd svaraði Jón Helgason í grein í Politiken 1950, sem birtist sama ár í þessu tímariti í þýðingu Jakobs Benediktssonar. I upphafi greinarinnar hélt Jón því fram að flest húmanistísk vísindi væru að mestu leyti þjóðlegs eðlis, og hann sýndi fram á að útgáfum íslenskra texta sem væru varðveittir í handritum í Arnasafni hefði að vonum lang-mest verið sinnt af Islendingum sjálfum. Síðan lýsti Jón því hversu erfitt útgáfustarfsemi við Arnasafn ætti uppdráttar vegna manneklu og fjárskorts, en í lok greinarinnar setti Jón fram hugmynd um útgáfustofnun handrita, þar sem ynnu einir fjórir fastráðnir málfræðingar auk styrkþega. Hvort dönsk eða íslensk stjórnvöld væru fús til að leggja fram nauðsynlegt fé til rekstrar slíkrar stofnunar, sagðist Jón ekki vita, en aðeins íslendingar gætu lagt fram þann mannafla sem til þyrfti og eðlileg heimkynni þessarar starfsemi væri á íslandi. Fyrstu hugmyndir danskra stjórnvalda um lausn handritamálsins komu fram 1954. Þessar tillögur vóru aldrei birtar opinberlega, en í þeim fólst að íslensku handritin í Danmörku skyldu verða sameign Dana og íslendinga og þeim skipt til varðveislu milli Kaupmannahafnar og Reykjavíkur (væntanlega ekki ólíkt því sem nú verður í raun), og í borgunum tveimur skyldi komið upp rann- sóknarstofnunum handrita. Þessi hugmynd var nýstárleg, og mér er kunnugt um að Sigurður Nordal, sem þá var sendiherra íslands í Höfn, mælti með henni eftir að hafa ráðfært sig við Jón Helgason, en íslensk stjórnvöld höfnuðu henni algjörlega, og lausn handritamálsins var ekki í sjónmáli næstu árin. Dönsk stjórnvöld létu hins vegar af því verða að koma upp rannsóknarstofn- un handrita hjá sér, Det arnamagnæanske institut. Sú stofnun fór hægt af stað, var allt í einu komin á fjárlög 1956 án nokkurrar reglugerðar, og sumarið 1957 var Arnasafn og seðlasafn orðabókarinnar flutt úr þröngum húsakynnum sínum í Háskólabókasafni í önnur rúmbetri í Proviantgarden, gamalii birgðaskemmu flotans við hlið Konungsbókhlöðu. Staða við stofnunina var reyndar engin fyrstu árin, en Jón Helgason varð sjálfkrafa forstöðumaður hennar auk þess að hann gegndi áfram prófessorsstarfinu. Arlega var veitt fé til að greiða nokkur vinnulaun útgefenda og aðstoðarmanna, fyrir ljósmyndun og viðgerðir hand- rita, til bókakaupa og til þess að kosta prentun útgáfubóka. Fjárveitingarnar gerðu það meðal annars kleift að tengja stúdenta við stofnun- ina. Duglegir og áhugasamir dönsku- og norrænunemar vóru ráðnir í tímavinnu til að vélrita texta eftir handritum, skrá lesbrigði, gera nafnaskrár o.fl. Sumir stúdentanna litu á þessa vinnu sem hverja aðra tekjuöflunarleið og stóðu við stuttan tíma, en aðrir urðu hugfangnir af verkinu og þeim áhuga sem forstöðu- maður sýndi með því að stinga upp á því einn góðan veðurdag að þeir tækju að sér sjálfstætt rannsóknarverkefni sem þeir gætu jafnframt notað sem prófrit- gerðarefni. Þannig framleiddi Jón fræðimannsefnin á færibandi, sem vóru tilbúin að taka við þeim stöðum sem til urðu hver af annari uns þær vóru orðnar 8
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.