Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.1986, Side 20

Tímarit Máls og menningar - 01.02.1986, Side 20
Tímarit Máls og menningar framan við lestrarsalinn, þar sem Jón sat löngum og reykti pípu sína og las prófarkir. Hann var óþreytandi að miðla af fróðleik sínum eða leita fróðleik uppi þar sem hann rámaði í að hann væri að finna, hann ræddi um tilhögun verka og las yfir greinar og bókarhluta sem fólk hafði í smíðum, hann leitaðist við að greiða úr flækjum sem upp komu og að lesa torráðin orð sem einhver réð ekki við, og hann samgladdist yfir hverri nýrri uppgötvun sem gerð var, þó smávægileg væri stundum, og fékk fræðimanninn unga til að finna ögn meira til sín en áður. Jón ýtti á eftir verkum manna, en gerði það með hægð. I prentsmiðju var hann sí-hringjandi til að spyrjast fyrir og reka á eftir sínum próförkum og annara. Mestu aufúsugestir á safninu vóru sendlar úr prentsmiðj- um, og Jóni var nautn að því að handleika glænýjar prófarkir, sem höfðu leyst af hólmi margþvælt prentsmiðjuhandrit eða útkrotaða örk; nýju prófarkirnar höfðu þann kost fram yfir fullprentaða bók, að enn var þess kostur að leiðrétta prentvillur eða jafnvel að víkja við orðum þar sem eitthvað mátti betur fara. Ekki veit ég til þess að Jón Helgason hafi haldið uppi almennri kennslu í handritalestri eða útgáfustarfi, en allir þeir sem nú starfa við handritarannsóknir á systurstofnununum tveim, Arnastofnun í Höfn og hér, og ófáir aðrir fræði- menn í öllum heimsálfum hafa af honum lært, beint eða óbeint, sumpart af beinni leiðsögn hans og hjálpsemi, sumpart af verkum hans sjálfs. En enginn sameinar skjótvirkni hans og öryggi og þá víðtæku þekkingu á viðfangsefninu, sem hann bjó yfir. Jón Helgason setti ekki fram nýjar aðferðafræðikenningar. Hann beitti þeirri vísindalegu aðferð í textarýni, sem byrjað var að nota á fyrri hluta 19. aldar, en hafði ekki verið beitt nema við fá íslensk handrit fyrr en á þessari öld og stundum með hæpnum árangri. Með flokkun handrita á grundvelli sameigin- legra villna er leitast við að komast að skyldleika þeirra, og þá fyrst er hægt að meta gildi mismunandi leshátta, hver þeirra sé líklegastur til þess að hafa verið í frumriti varðveittra handrita. Þessari aðferð beitti Jón af strangleika, en hann gerði sér um leið gleggri grein fyrir en margir aðrir að mjög oft verður ekki komist að upphaflegum texta með aðferðum textarýninnar, og því taldi hann vænlegast að fylgja eftir föngum einu handriti við prentun aðaltexta og birta fleiri texta saman, ef mismunur þeirra var umtalsverður. Mikilvægt var að kanna Öll handrit, sem höfðu það ritverk að geyma sem að var unnið, og gera sem ljósasta grein fyrir einkennum hvers og eins, þannig að útgáfan yrði ekki hálfkák og leiddi ekki á villigötur. Vandvirkni Jóns og samviskusemi hans gagnvart þeim textum sem hann fékkst við og gagnvart lesendum valda því að þær útgáfur sem hann vann að eru afburða traustar og sjaldnast verður um bætt. Þegar stofnun Árna Magnússonar í Kaupmannahöfn var sett á laggirnar fengust auknar fjárveitingar til prentunar, bæði til áframhaldandi útgáfu á Bibliotheca Arnamagnæana og til að stofna til nýrrar bókaraðar, Editiones Arnamagnxanie, sem í skyldu vera vandaðar textaútgáfur. Sú röð hóf göngu sína 1958 undir ritstjórn Jóns Helgasonar, og í henni eru nú komin út 40 bindi, 10
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.