Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.1986, Side 55

Tímarit Máls og menningar - 01.02.1986, Side 55
Ekki abeins á jólunum unnar til þess að kvarta yfir bæði prestinum og aðstoðarprestinum. Málið var tekið upp á kórréttan hátt og mál höfðað vegna vanrækslu á skyldum sálusorgara, en prestarnir unnu málið fyrir undirrétti. Onnur málsókn er enn í undirbúningi. Til allrar hamingju tókst að hafa uppá klerki, sem látið hafði af störfum fyrir aldurssakir og bjó í grennd. Pessi hrífandi gamli herramaður lýsti því elskulega yfir að hann væri reiðubúinn að vera til taks og fylla uppí eyðuna við kvöldhátíðina. En hér hljóp ég yfir svolítið. Franz föðurbróðir, sem var nægilega raunsær til að sjá að engin læknishjálp mundi koma að haldi og neitaði einnig staðfastlega að beita særingum, var nægilega mikill kaupsýslumaður til þess að búa sig undir að þetta mundi vara lengi og reikna út hvað væri hagkvæmast að gera. Það fyrsta var að um miðjan júní var hætt að gera barnabörnin út í leiðangur af því að það reyndist of dýrt. Hinn úrræðagóði frændi minn, Jóhannes, sem hefur ágæt sambönd við alla sem fást við kaupsýslu, þefaði uppi Söderbaum fyrirtækið, sem selur ný grenitré. Þetta er afkastamikið fyrirtæki, sem hefur um tveggja ára skeið unnið mjög þarft verk til verndar taugum ættingja minna. Strax eftir hálft ár breytti fyrirtækið Söderbaum sölu trésins í talsvert ódýrari áskrift og lýsti sig reiðubúið að láta barrnálasérfræðing sinn dr. Allfast ákvarða nákvæmlega afhendingartíma, þannig að nýja tréð kæmi þremur dögum áður en það gamla yrði óhæft, svo að unnt yrði að skreyta það í ró og næði. Auk þess voru í öryggisskyni geymdar tvær tylftir dverga og þrír toppenglar hafðir til vara. Sætindi hafa allt til þessa verið veiki hlekkurinn. Þau höfðu tilhneigingu til að bráðna og drjúpa af trénu fyrr og enn ákafar en kertavax, amk. um sumarmánuðina. Sérhver tilraun til að halda jólaáferð þeirra með hugvitsamlega dulbúnum kælibúnaði hefur mistekist til þessa. Enn fremur röð af tilraunum sem hafnar voru til að athuga möguleika á því að styrkja tréð. Því er fjölskyldan þakklát og opin fyrir öllum framfarasinnuðum hugmyndum sem gætu stuðl- að að því að draga úr kostnaði við þessa stöðugu jólahátíð. VI Þegar hér var komið sögu höfðu kvöldhátíðirnar í húsi föðurbróður míns staðnað í ákveðnu formi. Safnast var saman við tréð, frænka mín kom inn, það var kveikt á kertunum, dvergarnir byrjuðu að 45
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.