Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.1986, Side 72

Tímarit Máls og menningar - 01.02.1986, Side 72
Frelsið þverr dag frá degi á sama hátt og landið glatast smátt og smátt undir akvegi og annað þessháttar. Eg lít á hvern þann einstakling sem frjálsan mann, sem getur með vinnu sinni aflað sjálfum sér og fjölskyldu sinni viðurværis. Bátmennirnir á Rín og bændurnir voru ævinlega í mínum augum holdtekja hins frjálsa manns, með öllum þeim áhættum sem þeir taka og öllum þeim áföllum sem þeir verða að horfast í augu við. Þeim fækkar með hverjum degi. Þetta á sér sömuleiðis stað í minni starfsgrein, afþví hún er líka óháð starfsgrein; starfsbræður mínir eru daglega að týna frelsi sínu, einnig efnahagslegu frelsi. Okkur er tamt að hugsa einungis um stórstirnin með metsölubækurnar, en þeir eru innanvið tveir af hundraði rithöfunda, og hinir vinna af engu minni alúð, stundum jafnvel meiri alúð. Þessi stjörnu- dýrkun á öllum sviðum er fáránleg. Hér er líka verið að afmá frelsið, og einnig má nefna kvikmyndagerðina. Eg er sannfærður um að gera mætti kvikmynd, hvernig sem henni væri háttað, með ungum þýskum leikurum sem kynnu að vera okkur gersamlega ókunnir. En menn telja sig nauðbeygða til að sækja stórstirni, sem með launakröfum sínum gera myndina miklu dýrari en vera þyrfti. Öll þessi þróun er ískyggileg. Að þessu leyti erum við þegar amríkaníseraðir. Að sjálfsögðu eru góðar hliðar á Amríku, margar jákvæðar hliðar; hún er fjölbreytt land með mörg jarðfræðileg, landfræðileg og vitsmunaleg tilbrigði, en ég á við ómengaða iðnvæðingu menningarinnar. Hún er ákaflega slæm. Iðnvæðing, samþjöpp- un, þar er hin skæða hætta. Þú sagðir að ögn af frelsi dæi œvinlega þegar frjálsar atvinnugreinar legðust af Er hér um að ræða mál sem heimfæra má uppá þjóðfélagið almennt? Eg lít ekki á hugtakið frjálsar atvinnugreinar frá efnahagslegu sjónarmiði, það er skilgreiningaratriði skattayfirvalda sem ræða mætti, en skiptir ekki máli í þessu samhengi. Við sjáum sömu þróun meðal lögfræðinga og lækna, sem margir hverjir eiga erfitt uppdráttar, en það merkir að þeir séu að týna frelsi sínu, hvort sem um er að ræða pólitískt frelsi eða frelsi til að taka ákvarðanir. Þar felst hin mikla hætta. Allar frjálsar starfsgreinar, þarmeð talin ritlist og myndlist, eiga þetta sammerkt: alltaf eru einn eða tveir blásnir upp, kvikmyndaleikarar, einn eða tveir rithöfundar, einn eða tveir myndlist- armenn, kannski tíu eða tuttugu, en allir hinir liggja óbættir hjá garði. Það ætti að vekja áhuga stjórnmálamanna sem eru með frelsið á vörunum að minnstakosti tíu sinnum á dag. Sigurður A. Magnússon þýddi 62
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.