Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.1986, Síða 106

Tímarit Máls og menningar - 01.02.1986, Síða 106
Jesse L. Byock „Milliganga“ Félagslegar rætur íslendingasagna Frásagnarlist Islendingasagna er mótuð af mikilvægum þáttum í samfélagi þess tíma þegar þær voru sagðar og ritaðar og áhrifamátt sinn fyrr og nú eiga þær einkum því að þakka hve raunsanna mynd þær gefa af sjálfu gangvirki samfélagsins. Þessa staðhæfingu ætla ég að rökstyðja með því að kanna fyrirbæri, sem ég nefni „milligöngu", og hlutverk þess í byggingu sagnanna. Löngum hafa lesendur íslendingasagna og Sturlungu veitt því athygli að hægt er að greina frásögnina sundur í þætti. Minni háttar atvik mynda dálítinn söguþráð sem einatt fléttast inn í meiri háttar deilur milli ætta eða einstaklinga. Margar af þessum minnstu frásögnum snúast um einhver innansveitarmál, og við fyrstu sýn virðist endir einnar oft ekki vera í miklum tengslum við upphaf þeirrar næstu. Bæði íslendingasögur og sögurnar í Sturlungu eru að miklu leyti settar saman úr svona þáttum. Þar er sagt frá eftirminnilegum átökum sem skiptu samfélagið máli. Heildargerð sagnanna markast af því sem sögulegast þótti, þ.e.a.s. að „bændur flugust á“. Gerð samfélagsins beindi frásagnarlistinni í ákveðna farvegi,1 og þetta gat gerst vegna þess að fyrirbæri, sem ég nefni „milligöngu“ og átti mikinn hlut að viðgangi samfélagsins, þótti gott söguefni. Með milligöngu á ég við það þegar þriðji aðili kemur inn í deilu tveggja, þannig að það hafi áhrif á gang mála. Mikilvægasta milliganga er umboð, þegar maður tekur við máli af öðrum, oftast höfðingi af lægra settum manni, en einnig getur verið um að ræða liðveislu af ýmsu tagi ellegar minni háttar afskipti aukapersóna, svo sem fréttaflutning um illmæli eða hvöt til víga.2 Það er milliganga, þegar Njáll fer með mál Gunnars á þingi og veitir honum lið, sama er að segja um það þegar Sámur Bjarnason tekur við máli af Þorbirni frænda sínum í Hrafnkels sögu og fær síðan sjálfur lið af Þjóstar- sonum. Milliganga er það líka þegar förukonur bera illmæli frá Hlíðarenda að Bergþórshvoli eða þegar griðkona eggja Hrafnkel Freysgoða til dáða og segir honum frá reið Eyvindar Bjarnasonar fram hjá garði hans. Milliganga í deilumálum er í sjálfu sér ekki flókið fyrirbæri og hún kemur fyrir í einhverri mynd í flestum þjóðfélögum. En íslenska goðaveldið var
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.