Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1999, Page 36

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1999, Page 36
Kristín Viðarsdóttir Kynlegir kvistir Saga, kyn og kynhneigð í skáldsögunni Orlando eftir Virginiu Woolf Virginia Woolf (1882-1941) var einn af frumkvöðlum módernismans í bók- menntum á Bretlandi og meðal helstu meðlima hins fræga hóps listamanna sem kenndur var við Bloomsbury hverfið í London. Eftir hana liggja bæði skáldsögur, smásögur, leikrit, dagbækur og fræðigreinar, auk þess sem hún starfaði sem bókmenntagagnrýnandi hjá Times Literary Supplement allt frá árinu 1905 nánast fram til dauðadags. Skáldsögur hennar Jacob’s Room (1922) og Mrs. Dalloway (1925) eru taldar til brautryðjendaverka módern- ismans en árið 1922 komu einnig út skáldsaga James Joyce, Ulysses og ljóða- bálkurinn The Waste Land eftir T.S. Eliot. Woolf er meðal annars þekkt fyrir svokallað vitundarstreymi í skáldskap sem sjá má í ofangreindum verkum og fleiri sem á eftir komu, svo sem skáldsögunum To the Lighthouse (1927) og The Waves (1931). Woolf er ekkisíður þekkt fyrir skrif sín um konur ogbók- menntir, sérstaklega ritgerðina A Room of One’s Own (1929) sem er byggð á fyrirlestrum sem Woolf hélt við kvennaháskólana Girton og Newnham í Cambridge árið 1928, sama ár og skáldsaga hennar Orlando, a Biography kom út. Ritgerðin kom út í íslenskri þýðingu Helgu Kress árið 1983 (Sérherbergi) og er eina bók Woolf sem þýdd hefur verið á íslensku.1 I Sérherbergi fjallar Woolf um tengsl kvenna og bókmennta á sérstæðan og skemmtilegan hátt, meðal annars með því að beita fyrrnefndu vitundarflæði ásamt beittri íróníu, og hefur bókin haft gífurleg áhrif á umræðu um konur og bókmenntir allt fram á þennan dag. Sjá má vissar hliðstæður, bæði í stíl og umræðunni um stöðu kvenna, með Sérherbergi og Orlando og mun ég fjalla um sumar þeirra hér á eftir. I báðum þessum verkum setur Virginia Woolf einnig fram hugmynd um það sem hún kallar „tvíkynja huga“, þótt hún gangi mun lengra með þá hugmynd í Orlando þar sem persónan Orlando er ýmist karl eða kona og upplifun hennar og kynhneigð ekki endilega í „sam- ræmi“ við líffræðilegt kyn hennar hverju sinni. Þessi „kynlegi" sveigjanleiki Orlando minnir um sumt á nýrri kenningar póststrúktúralískra fræði- manna, sérstaklega það sem á íslensku hefur verið kallað „kyngervisusli“ en 34 www.mm.is TMM 1999:3
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.