Tímarit Máls og menningar - 01.09.1999, Blaðsíða 60
SHÍRLEyJACKSON
einu fóru allar konurnar að tala og sögðu: „Hver er það?“ „Hver fékk
hann?“ „Er það Dunbarfjölskyldan?“ „Er það Watsonfjölskyldan?“
Síðan fóru raddirnar að segja: „Það er Hutchinson. Það er Bill,“ „Bill
Hutchinson fékk hann.“
„Farðu og láttu föður þinn vita,“ sagði frú Dunbar við eldri son
sinn.
Fólk fór að líta í kringum sig til að sjá Hutchinsonfjölskylduna. Bill
Hutchinson stóð hljóður og starði á miðann í lófa sínum. Allt í einu
hrópaði Tessie Hutchinson til Summers: „Þú gafst honum ekki nógan
tíma til að taka miðann sem hann vildi. Ég sá til þín. Það var ekki sann-
gjarnt!“
„Láttu ekki svona, Tessie,“ kallaði frú Delacroix og frú Graves sagði:
„Við tökum öll sömu áhættuna.“
„Þegiðu Tessie,“ sagði Bill Hutchinson.
„Jæja, gott fólk,“ sagði Summers, „þetta gekk nokkuð fljótt og nú
verðum við að flýta okkur aðeins meira til að ljúka þessu í tæka tíð.“
Hann gáði á næsta lista. „Bill,“ sagði hann, „þú dregur fyrir Hutchin-
sonfjölskylduna. Eru fleiri heimili innan Hutchinsonfjölskyldunnar?“
„Já, Don og Eva,“ hrópaði frú Hutcinson. „Látum þau freista gæf-
unnar!“
„Dætur draga með fjölskyldum eiginmanna sinna,Tessie,“ sagði
Summers blíðlega. „Þú veist það jafn vel og allir aðrir.“
„Það var ekki sanngjarnt,11 sagði Tessie.
„Ég held ekki, Joe,“ sagði Bill Hutchinson hryggur í bragði. „Dóttir
mín dregur með fjölskyldu mannsins síns, það er ekki nema sann-
gjarnt. Og ég á ekki aðra fjölskyldu en börnin.“
„Svo þú dregur þá fyrir fjölskylduna,“ útskýrði Summers, „og þú
dregur líka fýrir heimilið. Er það ekki?“
„Jú,“ sagði Bill Hutchinson.
„Hve mörg börn, Bill?“ spurði Summers formlega.
„Þrjú,“ sagði Bill Hutchinson. „Það er Bill yngri og Nancy og Dave
litli. Og Tessie og ég.“
„Allt í lagi,“ sagði Summers. „Harry, ertu búinn að fá miðana þeirra
aftur?“
Graves kinkaði kolli og lyfti pappírsmiðunum. „Láttu þá í kassann,“
skipaði Summers. „Taktu miðann hans Bill og láttu hann í.“
„Mér fmnst að við ættum að byrja aftur,“ sagði frú Hutchinson eins
58
www.mm.is
TMM 1999:3