Tímarit Máls og menningar - 01.09.1999, Side 80
HORACIO QUIROGA
er þrúgandi og í því ríkir dauðaþögn. En þegar kvöldar verður samt
drungaleg fegurð þess að einstæðri tign.
Sólin var hnigin þegar maðurinn fann skelfilegan kulda þar sem
hann lá til hálfs niðri í bátnum. Allt í einu reisti hann höfuðið undr-
andi: honum leið betur. Hann fann varla til í fætinum, það dró úr
þorstanum, honum hafði létt fyrir brjósti og hann andaði rótt.
Eitrið þvarr, á því lék enginn vafi. Honum leið næstum vel. Og þótt
hann hefði naumast mátt til að hreyfa höndina hélt hann að sér batn-
aði alveg þegar færi að döggva. Hann bjóst við að verða kominn til
Tacúrú-Púcú innan þriggja klukkustunda.
Vellíðan hans jókst og um leið draumkennt ástand þrungið minn-
ingum. Nú fann hann ekki lengur fyrir fætinum eða kviðnum. Ætli
Gaona félagi búi enn í Tacúrú-Púcú? Kannski mundi hann líka hitta
fyrrum húbónda sinn, mister Dougald, og timburkaupmanninn.
Ætli sé stutt eftir? Vesturhiminninn opnaðist nú líkt og gullið tjald
og á fljótið hafði líka brugðið rauðan lit. Fjallið sendi rökkursvala frá
ströndinni, sem var orðin dimm við Paragvæ með andblæ frá appel-
sínublómum og skógarhunangi. Hátt uppi flugu páfagaukahjón í átt-
ina að Paragvæ.
Á gullnu fljótinu fyrir neðan hringsnerist báturinn stöku sinnum
og rak hratt í iðustraumi. Manninum þar leið stöðugt betur og betur
og hugsaði á meðan um hvað væri nákvæmlega langt síðan hann hefði
hitt fyrrum húsbónda sinn, hann mister Dougald. Þrjú ár? Kannski
ekki svo langt. Tvö ár og níu mánuðir? Kannski. Átta og hálfur mánuð-
ur? Já, eflaust það.
Skyndilega fann hann að honum varð ískalt upp að brjósti.
Hvað ætli þetta sé? Og andardrátturinn ...
Hann hafði kynnst timburkaupmanni misters Dougalds, Lorenzo
Cubilla, í Puerto Esperanza á föstudaginn langa .. . Föstudaginn? Já,
eða á fimmtudegi...
Maðurinn teygði hægt úr fmgrunum.
Á fimmtudegi...
Og hann hætti að anda.
78
www.mm.is
TMM 1999:3