Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1999, Side 111

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1999, Side 111
RITDÓMAR bragðið eins konar þrjú hundruð þús- und mannahressilegtþjóðleysi“ (bls. 379). Með þessum sjálfsævisöguskrifum leggur Guðbergur hins vegar áherslu á mikil- vægi upprunans og segir: „1 rauninni held ég að trúarlíf mitt, ef svo mætti kalla, felist í því að vera trúr minningu um guð og kannski líka gömlu kirkjuna og æsku sem er liðin“ (bls. 392). Eins og oft verður í skrifum af þessu tagi er því fortíðin að nokkru leyti sett upp sem andstæða nú- tímans og þá auðvitað undir þeim for- merkjum að það sem er glatað og horfið hljóti að vera þýðingarmeira og gætt meiri dýpt en það sem blasir við allt um kring. Listsýn sköpuð Guðbergur rekur í þessu verki þróun skáldskaparhugsunar sinnar og listsýnar. Hann sýnir ffam á og endurskapar hvernig aðstæður, fólk og atburðir úr æsku hans formuðu hugmyndir hans um list, sköpun og skynjun, eins og al- gengt er í sjálfsævisögum skálda. í öllu verkinu er gegnumgangandi sú skoðun að það sé betra að hafa svolítið brenglaða sýn því veruleikinn geti villt um fyrir okkur: „Ég fann unað í villunni. Hún er stundum betri en veruleikinn. Vegna þess að hið ranga skyn lætur okkur koma auga á það sem veruleikinn hylur og hann hindrar að allt liggi í augum uppi. Hilling- arnar og hugarburðurinn draga hjúpinn af veruleikanum“ (bls. 78). Hilhngar og hugburður, eða skáldskapur, er því hér æðri veruleikanum, því hann getur út- skýrt veruleikann, en veruleikinn getur ekki útskýrt skáldskap. Hér eru því komin rök fyrir því að nota meðvitað skáldskap til að segja frá ævi sinni í þeim tilgangi að draga hjúpinn af veruleikanum: „Ég veit það og get auðveldlega gert greinarmun á veruleika og skáldskap. Vegna þess að ég er ekki lengur barn sem hlustar líkt og heillað á umhverfi sitt. Munurinn á skáldskap og veru- leika er sá að skáldið getur gefið skáld- skapnum tilgang en veruleikinn er ófær um slíkt, að minnsta kosti ekki ákveðinn þó hægt sé að gæða hann honum. En veruleikinn verður ekki saminn af öðrum því hann verður til af sjálfum sér og er merkingarlaus og sannur. Aftur á móti er skáldskapur- inn tilbúningur en hann er sannari vegna þess að í honum er þjappað saman eðli veruleikans og skoðunum skáldsins á honum“ (bls. 353). Skáldskapur er því nauðsynlegur til skilnings og skynjunar á veruleikanum og gæðir hann merkingu. Þetta er ekki einungis almenn stefnuyfirlýsing eða skoðun því að í verkinu er þetta notað sem aðferð til að gæða atburði úr fortíð- inni merkingu og vægi. Þannig verður heimsókn til ömmu að öðru og meira en hversdagslegum viðburði, hún verður að nokkurs konar dæmisögu um samband kynslóðanna og hugarheim föðurins. Þar með er hið hversdaglega útvíkkað og því gefið meira mikilvægi en „veruleik- inn“ er fær um. En skáldskapur er af ýmsu tagi og hér er það orð ekki notað yfir neina nytjalist eða íslenskan kveðskap. Mynd sem krakkarnir í skólanum teikna á skólavegginn verður hér að tákni um þá „hreinu“ hstsköpun sem Guðbergur setur upp sem andstæðu kveðskaparins. Karlinn á húsveggnum er nokkurs konar „ffum“listaverk, hann er merki um hreina sköpun, ómengaða bæði af thgangi og sjálfsmeðvitund. Hann er ffumlistaverk því hann bara „er“ og lýsir einhvers konar eðlislægri köllun th að skapa, aftur á móti voru menn ahtaf að kveða í einhverjum thgangi: „Ljóðlistin, eina listin sem var th, hafði aðeins hagnýtan thgang og ljóðið átti TMM 1999:3 www.mm.is 109
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.