Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.2011, Side 71
70 ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
2. Laxersalt (Sulfas magnes.), 300 grömm.
3. Rabarberdropar (Inf. rhei alkal.), 100 grömm.
4. Kamfórudropar (æther spir. camph.), 25 grömm.
5. Kínínskammtar (Sulfas. chin. 0.30), 10 skammtar.
6. Dóversskammtar (Pulv. ipec. theb. 0.50), 15 skammtar.
b) Útvortis lyf, umbúðir og áhöld.
1. Klóróformolía (Chloroform., ol. oliv.), 200 grömm.
2. Sápuspíritus (Spir. sap. camph.), 200 grömm.
3. Karbólsýra (acid. carbol. liqu.), 100 grömm.
4. Sárasmyrsl (vaselin. boric.), 50 grömm.
5. Enskur heptiplástur (Seric. adhæs.), 200 centim. [cm2].
6. Umbúðabögglar (sterile Kompresser og Bind), 10 (8 smáir, 2 stórir).
7. Baðmullarbögglar (steril Bomuld, gram 30), 5.
8. Silkiþráður, 2 álnir.
9. Sárasaumnálar, 2 misstórar.
10. Kloftöng (Pincet), 1.
11. Sveðja (Lancet), 1.
12. Skæri, 1.
13. Lásnælur (Sikkerhedsnaale), 10.
14. Þvagpípa (elastisk Kateter), 1. 92
Mikilvæg nýjung var að í hverjum kistli átti að vera „lækningabók handa
sjómönnum, sú er löggilt er í Danmörku handa dönskum skipum“.93 Hér er
um að ræða Lægebog for Søfarende eftir W. Hornemann, en hann var höfundur
allra lækningabóka fyrir sjómenn í Danmörku frá 1860 til 1905.94
Í báðum reglugerðunum er gert ráð fyrir að skipstjóra sé heimilt að veita
brennivín þegar honum þótti ástæða til, svo sem í kulda og vondum veðrum og
þegar vinna var ströng, en það taldist samt ekki til eiginlegs lyfjaforða. Á einum
stað segir að skipstjóri hafi fengið 30 lítra af brennivíni fyrir vetrarvertíðina
og gefið hverjum háseta stórt glas meðan á aðgerð stóð.95 Heimildir eru fyrir
92 Stjórnartíðindi 1901 B, bls. 5.
93 Sama heimild, bls. 5.
94 W. Hornemann, Lægebog for Søfarende indeholdende Veiledning til en forbedret Sund-
heds- og Sygepleie i Handelsskibe. Autoriseret af Indenrigsministeriet til Brug for Skibe paa
længere Reiser. 6te gjennemsete Oplag (Kjøbenhavn: F. Borchorst ś For lag 1882).
– Tölvup. Kenneth Roy Henriksen, bókavörður við Handels- og Søfarts museet,
Kronborg Slot, Helsingør, til höfundar 11. jan. 2011. – Ekki hefur fundist eintak
af bókinni á íslenskum söfnum.
95 Matthías Þórðarson, Litið til baka. Endurminningar (með myndum). 1 b. Æskuárin.
Fiskveiðar og önnur störf (Reykjavík: Leiftur 1946), bls. 116, 130.