Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.2011, Blaðsíða 248
ÍSLAND OG HEIMSMINJASKRÁ UNESCO 247
á Íslandi. Tilnefning Surts eyjar var sam þykkt á heimsminjaskrána í júlí árið
2008 í Québec í Kanada, sem var sömuleiðis merkur áfangi og verður haldin
vígsluhátíð í Vest manna eyjum af þessu tilefni 2012. Surtsey var viðurkennd
á heimsminjalistann á grundvelli vöktunar og rannsókna á þróun eyjunnar.
Samþykktin felur í sér viður kenningu til íslenskra stjórnvalda á friðun
Surtseyjar 1965 og varðveislu náttúru hennar.
Heimsminjaskrá UNESCO er talin leiða til þess að fagleg sjónarmið verði
í heiðri höfð við minja- og náttúruvernd. Alls eru um 900 staðir á skránni,
meðal þeirra þekktustu eru píramídarnir í Egyptalandi, Signubakkarnir í
París, Frelsisstyttan í New York, Akropolis í Aþenu, Stonehenge á Eng-
landi, Kína múrinn, Taj Mahal á Indlandi og Galapagos eyjar. Allt eru
þetta viður kenndir ferðamannastaðir sem almennt er borin virðing fyrir.
Heims minja skráin er talin hvetja til vandaðrar ferðaþjónustu en er lendis
hefur reynslan sýnt að skráning staða á heimsminjaskrá UNESCO hefur
leitt til aukins áhuga og virðingar ferðamanna og heimamanna. Ef staður
er skráður á heimsminjaskrá á viðkomandi ríki þess kost að fá al þjóða-
samfélagið til samstarfs um að upplýsa íbúa viðkomandi lands og ferða-
menn um einstakt gildi staðarins og aðstoða þannig við að varðveita
náttúru- og menningarminjar hverrar þjóðar. Ferðamönnum fjölgar
gjarnan til staða á heimsminjaskrá og því verða staðirnir mikilvægir fyrir
þjóðarhag.
Nýjar áherslur UNESCO um heimsminjar á 21. öld
Á nýrri yfirlitsskrá, sem heimsminjanefnd Íslands vinnur að, er unnið í
sam ræmi við nýjar áherslur UNESCO. Þar er samhengi og heildarumfang
þeirra minja sem um ræðir haft að leiðarljósi meðal annars með svokölluðum
rað tilnefningum á heildum, sem jafnvel ná yfir landamæri margra landa. Hjá
UNESCO er einnig lögð meiri áhersla á jafna dreifingu heimsminjastaða á
jörðinni og jafnvægi menningar- og náttúruminja.
Á hinni nýju yfirlitsskrá eru Breiðafjörður, Þingvallasvæðið allt, Vatna-
jökuls þjóðgarður, Mývatn, raðtilnefning íslenskra torfbygginga ásamt
tengdu menningarlandslagi. Auk þess er verið að vinna að undirbúningi að
þátttöku í tveimur alþjóðlegum raðtilnefningum, það er um náttúruminjar
í tengslum við Atlantshafshrygginn svo og norrænar minjar sem tengjast
menningu vík inga. Vinnan við tilnefningu víkingaminja er hafin og fer
Ísland með for ystu í þeirri vinnu. Stefnt er að því að skila inn umsókn í
byrjun árs 2012.