Glóðafeykir - 01.11.1974, Page 19
GLÓÐAFEYKIR
19
um útbreiðslu- o°' fræðslumál á ve«;um samvinnusamtakanna. Guð
láti gott á vita. Ekki er mér kunnugt um niðurstöðu þeirra um-
ræðna, en vonandi á árangursins eftir að verða áþreifanlega vart.
Einstöku kaupfélög hafa ráðið í þjónustu sína sérstaka fræðslufull-
trúa, en þó mun þar yfirleitt ekki vera um fast starf að ræða. Svo
þyrfti þó að vera, því að hæpið er, að slíkt starf geti verið ígripa-
vinna ef rækja á það með viðunandi árangri. Hugsanlegt er hins-
vegar að tvö eða fleiri nágrannakaupfélög geti sameinast um einn
mann, er ynni að þessum málum á vegum þeirra árið um kring.
Samvinnustefnan hefur unnið stóra og þýðingarmikla sigra á sviði
verzlunar og viðskipta og verða þeir vart ofmetnir. Úrræðum henn-
ar þarf að beita á fjölmörgum öðrum sviðum og á því er vaxandi
nauðsyn í þessu þjóðfélagi. En fyrir lítið koma sigurvinningar utá-
við, — og eru raunar skammgóður vei'mir, — ef ekki eru jafnframt
treystar hinar innri varnir. Sá þáttur hefur nú um hríð verið van-
ræktur og verði þar ekki bót á ráðin hið fyrsta, er hætt við að halla
taki undan fæti fyrir samvinnuhugsjóninni. Það slys má ekki henda.
Magnús H. Gíslason.