Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.09.2005, Side 40
kunna þú, Guð). í þriðja lagi af því hvernig hann rammar myndina inn með
upphafsorðum Jóhannesarguðspjalls og loks hvemig hann byggir á rúss-
nesku hefðinni um hinn heilaga dára með tilvísun í Fávitann eftir Dostojev-
sky. Til hliðsjónar er svo umfjöllun Tarkovskys sjálfs um myndina og hvaða
ljósi hún varpar á hana. Þessir fjórir þræðir sýna vel hvernig Tarkovsky
beitir kristnu myndmáli og málfari í Fórninni á sinn snjalla hátt, auk þess
sem þeir sýna hvernig hann fléttar saman ólíkar listgreinar við gerð mynd-
arinnar, þ.e. myndlist, tónlist, bókmenntum og leiklist.
Kvikmyndin
Fórnin er frá árinu 1986 og er hún síðasta kvikmyndin sem Andrei Tar-
kovsky gerði, en hann lést í lok þess árs. Myndin var tekin í Svíþjóð með
mörgum af samverkamönnum Ingmars Bergman og er til að mynda hand-
bragð kvikmyndatökumannsins Sven Nykvist mjög greinilegt í myndinni.
Fórnin vakti strax mikla athygli og hlaut m.a. fern verðlaun á kvikmynda-
hátíðinni í Cannes árið sem hún var frumsýnd og var til nefnd til þeirra
fimmtu (Gullpálmans). Þá hlaut hún bresku BAFTA-verðlaunin sem besta
erlenda myndin árið 1988, svo dæmi séu tekin.12
Fórnin segir frá því að Alexander, blaðamaður og heimspekingur og
fyrrum leikari, á fimmtíu ára afmæli. Fjölskyldan hefur safnast saman í
afskekktu húsi hans á landsbyggðinni ásamt póstmanninum Ottó og lækn-
inum Viktor, nánum vini fjölskyldunnar, sem nýlega hefur gert aðgerð á
hálsi ungs sonar Alexanders þannig að hann getur ekki talað. í fyrstu virð-
ist Alexander vera í ágætu jafnvægi en smám saman kemur í ljós að hann á
við sálarkreppu að stríða. Afmælissamkvæmið leiðir í ljós vissa spennu og
átök í fjölskyldunni en er síöan truflað af þeim hræðilegu fréttum að hafið
sé kjarnorkustríð milli austurs og vesturs. í örvæntingu sinni snýr Alexander
sér í bæn til Guðs og býðst til að fóma öllu sem hann á og lifa í þögn það
sem eftir er ef það gæti bjargað mannkyninu. Hann sofnar síðan og dreymir
drauma sem koma honum í uppnám. Auk þess kemur vinur hans, póstmað-
urinn Ottó, til hans og heldur því fram að með því að heimsækja íslensku
þjónustustúlkuna Maríu (sem Guðrún Gísladóttir leikur) og sofa hjá henni
muni Alexander geta bjargað veröldinni. Ottó álítur að María sé norn í góðri
merkingu þess orðs. Alexander fer síðan á hjóli Ottós til Maríu og fær hana
til að samrekkja sér. Daginn eftir vaknar Alexander og þá er allt fallið í Ijúfa
löð, veröldin er sem fyrr og hann stendur því andspænis því að þurfa að upp-
fylla heit sín gagnvart Guði.
12 The Intemet Movie Database.
38