Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.09.2005, Síða 55
játað synd sína og beðist miskunnar. Hún kallast á við syndajátningar Alex-
anders í myndinni og verður áhrifarík lokabæn þegar drengurinn mælir
fyrsta sinni í myndinni, um leið og Tarkvosky tileinkar jafnframt myndina
syni sínum með von og tiltrú. Tilvitnunin í upphafsorð Jóhannesarguðspjalls
setur skapandi Orð Guðs í brennidepil, bæði með því að afhjúpa innan-
tóman orðaflaum andlausrar menningar sem er hætt að spyrja um merkingu,
en um leið með því að benda á að Orðið varð hold og bjó meðal manna til
að leysa þá úr fjötrum myrkurs og skilningsleysis. Samsömun Alexanders
við Myshkin fursta í Fávita Dostojevskys og afkáralegar athafnir hans og
loforð um að lifa í þögn vísa til dáranna í Kristi sem með þögn sinni og
fáránlegu atferli leituðust við að sýna Krist mitt í heimi sjálfsdýrkunar og
ranglætis. Saman fléttaðir hníga allir þessir þræðir í þá sömu átt að fóm
Alexanders endurspegli fóm Krists. Frelsun manna úr fjötrum efnis- og
framfarahyggju, úr fjötrum syndugrar menningar, kostar fórn. Sú fóm hefur
verið færð af Kristi. Með mynd sinni vísar Tarkovsky til þeirrar fómar í von
um andlega endurnýjun menningar sem er að því komin að tortíma sjálfri
sér í efnis- og tæknihyggju.
Heimildir
Efni af vef og mynddiski:
Epelboin, Annie, 1986: A propos du Sacrifice. Viðtal í tímaritinu Positiv í maí 1986.
Ensk þýðing: Andrei Tarkovsky on The Sacrifice. http://www.acs.ucalg-
ary.ca/~tstronds/nostalghia.com/TheTopics/On_Sacrifice.html (21.01.01).
Fórnin (The Sacrifice), 1986. The Swedish Film Institute/Argos Films in association
with Film Four International. Útgefandi DVD-disks: Artifícial Eye.
Green, Peter, 1987: Apocalyps & Sacrifice. Sight and Sound, pp 111-118.
http://www.acs.ucalgary.ca/~tstronds/nostalghia.com/TheTopics/Green_Sacrif-
ice_Essay.html (21.01.2005).
The Internet Movie Database, Ojfret, http://www.imdb.com/title/tt0091670/
(22.08.05).
Mahaffy, Jake, 2002: The NeedforLoss: Realizing Sacrifice in the Films ofAndrey Tar-
kovsky. The Journal of Religion and Film Vol. 6. No.2. http://avalon.unomaha.edu/
jrf/sacri.htm (21.01.05).
Moliterno, Gino, 2001: Zarathustra's gift in Tarkovsky’s The Sacrifice. http//www.lat-
robe.edu.au/screeningthepast/firstrelease/fr0301/gmfrl2a.htm (21.01.05).
Pavelin, Alan [án ártals]. The Genius of Andrei Tarkovsky. http://www.talking-
pix.co.uk/Article_Tarkovsky2.html (21.01.05).
Prentuð rit:
Biblían, 1981. Reykjavík, Hið íslenska Biblíufélag.
Bodin, Per-Arne, 1996: Varlden som ikon. Átta föredrag om den ryskorthodoxa and-
liga traditionen. Skelleftá, Artos Bokförlag.
53