Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.09.2005, Page 61
Ó að ég hefði vængi eins og dúfan,
þá skyldi ég fljúga burt og finna hvíldarstað.
Þetta vers hefur orðið ýmsum listamönnum að yrkisefni, ekki bara á
sviði ljóðlistar heldur einnig tónlistar og kvikmyndagerðar.15
En sálmurinn er þó enn frekar athyglisverður fyrir þá sök að sá eða sú
sem í sálminum talar hefur orðið fyrir miklu áfalli og það sem er sárast í
harmi sálmaskáldsins er sú staðreynd að það er ekki fjandmaður sem er
valdur að harminum heldur ástvinur.
Því að það er eigi óvinur sem hæðir mig,
það gæti ég þolað,
og eigi hatursmaður minn er hreykir sér yfir mig
fyrir honum gæti ég farið í felur
heldur þú, jafningi minn,
vinur minn og kunningi,
við sem vorum ástúðarvinir,
sem gengum í eindrægni saman í Guðs hús. (V. 13).
Að vera svikinn af samherjum sínum, svo ekki sé talað um hina allra
nánustu, þ.e. fjölskylduna eða makann sjálfan. Það er einhver sárasta
reynsla sem menn verða fyrir. Þeir prestar sem sérstaklega hafa menntað sig
í og lagt stund á viðbrögð við áföllum og ástvinamissi vitna um að sorgar-
ferlið eftir framhjáhald og hjónaskilnað er oft á tíðum engu minna eða auð-
veldara að lækna heldur en eftir dauðsfall.
Hér sjáum við kannski skýringuna á því hve átök milli samherja í stjóm-
málum verða oft miklu hatrammari en þegar pólitískir andstæðingar eiga í
hlut. Þetta athyglisverða vers varpar jafnframt ljósi á þær sáru og erfiðu
deilur sem á stundum koma upp innan kirkjunnar. „Því að það er eigi óvinur
sem hæðir mig ... heldur þú vinur minn og kunningi, við sem vorum ástúð-
arvinir sem gengum í eindrægni saman í Guðs hús.“
Hinir fjölbreytilegu harmasálmar Saltarans færa okkur heim sanninn um
að manneskjan er í grundvallaratriðum söm við sig í gegnum tfðina.
Lofsöngvar
Þeir sem handgengnir eru Saltaranum vita að hann er annað og meira en
15 ValdimarBriem 1902. Valdimar átti síðareftir að yrkjaáný út frá þessum sálmi. Sjá Valdimar Briem 1910.
Sjá Gunnlaugur A. Jónsson 2000 b þar sem m.a. er fjallað um notkun Sálms 55 í kvikmyndinni Wings
of the Dove (1997).
59