Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.09.2005, Síða 82
hugga börn þín sánkti Máría
hugga börnin þín í jarðarskugganum
þú rósan allra ljósa.39
Langviðamesta „móður-ljóðið“ í Sjödœgru er Mater dolorosa (hin þjáða
móðir) sem höfundurinn orti í minningu móður sinnar, Halldóru Guð-
brandsdóttur en hún lést 23. jan. 1945 í hárri elli.40 Ljóðið skiptist í 12
mislanga kafla og myndar sérstaka bók en ljóðum Sjödægru er alls skipt í
sjö bækur og kann það að ráða nafni hennar.41 Mater dolorosa myndar
fjórðu bókina og þar með miðhluta og þungamiðju Sjödægru. Þegar í heiti
ljóðsins og í lokahluta þess samsamar skáldið móður sína við guðsmóður-
ina.
Við fregnina um móðurmissinn setur skáldið hljótt: „Mín harpa/bærðist
ekki það kvöld“ en skáldið grét ekki.42 í þögn syrgði það móður sína. Æsku-
minningar vöknuðu til lífs og skáldið hugleiddi stöðu sjálfs sín í heiminum
á þessum tímamótum. Frá sjónarhorni djúpsálarfræðinnar kann skáldið að
hafa gengið í gegnum ferli sem nefnt er regression. Það fyrirbæri má skil-
greina sem afturhvarf til hins bernska æviskeiðs í leit að glötuðum eða
ómeðvituðum kjarna eigin sjálfs eða verundar. Oft leiðir ferli af þessu tagi
til truflunar á félagslegri færni eintaklings eða veldur honum sálrænum
erfiðleikum. í ljóðinu tekst skáldinu aftur á móti að gefa fyrri æviskeiðum
endurnýjaða og dýpkaða merkingu og sættast við orðinn hlut.43 Úr þeim
hugrenningum spinnur skáldið síðan ljóðabálk sem víða er skotinn tilvitn-
unum í helgitexta. Má þar nefna þekktasta útfararsálm þjóðarinnar, sálminn
Um dauðans óvissan tíma eða Allt eins og blómstrið eina eins og hann heitir
nú á dögum í hugum flestra, Faðir vorið og ritninguna.44
39 Jóhannes úr Kötlum 1976: 52. Rósin er þekkt tákn Maríu og raunar fleiri kvendýrlinga í kristinni tákn-
hefð (,,íkonógrafíu“). Dahlby 1977: 66-67.
40 Jóhannes úr Kötlum 1976: 64, 71-72. Hér er litið á þetta ljóð sem vitnisburð um sterkt kristið hugarþel.
Eysteinn Þorvaldsson (1971:28) telur það vitna um „tryggð ... og trúarkennd gagnvart tilfinningahelgi-
dómi“. Varðandi tengsl skáldsins við móður sína í beinni og yfirfærðri merkingu sjá einnig ljóðið Tvö
augu. Jóhannes úr Kötlum 1976: 37.
41 Eysteinn Þorvaldsson 1971: 39.
42 Jóhannes úr Kötlum 1976: 64-65.
43 Skárderud 2004: 152. Að hyggju djúpsálarfræðingsins C. G. Jungs fól regression \ sér afturhvarf einstak-
lings til róta tilveru sinnar, frumbemskunnar og þeirra kennda sem henni voru samfara, sem og aðlögun
að innri veruleika sínum. Slíkt afturhvarf getur að hans hyggju bæði verið neikvætt, þ.e. leitt til félags-
legrar hömlunar og sálfræðilegra truflana, og jákvætt, þ.e. haft það í för með sér að einstaklingurinn upp-
götvi áður ómeðvitaða afstöðu eða tilfinningar og gefi þeim nýtt gildi. Hark 1999: 197-200.
44 Minna vinnubrögðin hér örlítið á Sóleyjarkvœði þótt vart kveði eins rammt að tilvitnunum hér og í þvf.
80