Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.09.2005, Síða 149
margir foreldrar ungra barna, en að seinni hópurinn biðji sjaldnar vegna
þess að þar eru ekki lengur jafn margir foreldrar ungra barna sem beðið er
með. Elsti aldurshópurinn biður oftast. Skýringin er sennilega sú að það fólk
ólst oftast upp við bænir í bemsku og einnig það að á þessu aldurskeiði eru
margir afar og ömmur sem oft biðja með bamabömum.
Það kemur í ljós að það að biðja Faðir vor er ekki bundið við fólk sem
játar kristna trú án fyrirvara og sækir kirkju regulega. 11,6% þeirra sem telja
sig ekki trúaða biðja Faðir vor daglega eða því sem næst. Það gera einnig
30% þeirra sem aldrei fara til kirkju til að vera við almennar guðsþjónustur.
54% þeirra sem játa kristna trú biðja Faðir vor daglega eða því sem næst,
en 35% þeirra sem trúa á sinn hátt. Þetta ásamt fleiru bendir til þess að fólk
sem ekki á persónlega trú á kærleiksríkan Guð, sem það sjálft getur beðið
til og játi ekki kristna trú sjálft, biðji bænina Faðir vor og þá er líklegt að
það geri það á kvöldin með börnum sínum. Mun fleiri konur en karlar biðja
Faðir vor daglega eða því sem næst (51 % á móti 33 %) enda biðja þær oftar
með börnum eins og fram kemur hér að neðan.
Bænaiðja er að sjálfsögðu ekki bundin við bænina Faðir vor og bak við
bænir liggur ekki, eins og áður hefur komið fram, alltaf hugmynd um þann
kærleiksríka Guð sem kirkjan boðar - E.t.v. beina sumir bænum sínum til
óskilgreinds ytri máttar eða alls ekki til guðs í neinum skilningi. Sumar
bænir eru fremur íhugun eða innra samtal einstaklingsins við sjálfan sig, en
aðgreiningu er hér erfitt að gera því blæbrigði bæna eru margvísleg. í
könnun Gallup árið 2000 var reynt að fá hugmynd um það hve oft bænir í
víðum skilningi þess orðs eru beðnar með því að spyrja tveggja spurninga
til viðbótar: Hversu oft biðurþú til œðri máttarvalda? Og: Hversu oft sendir
þú góðar hugsanir eða strauma?
Tafla 6. Biðja til æðri máttarvalda og senda góðar hugsanir og strauma,
Gallup 2004. Prósentutölur af þeim sem afstöðu tóku.
Æðri máttarvalda Senda góðar hugsanir
og strauma
n=
Daglega eða því sem næst
1 -2 í viku
Sjaldnar en vikulega
Aldrei
719 659
40,9 71,8
14,3 16,2
23,2 7,9
21,6 4,1
100 100
147